Hlutur kvenna í friðargæslustörfum

Hlutur kvenna í friðargæslustörfum

Á árinu 2011 er reiknað með jafnri kynjaskiptingu í hópi starfandi sérfræðinga Íslensku friðargæslunnar erlendis, og verður það í fyrsta sinn, sem þeim áfanga er náð. Sama verður upp á teningnum í kosningaeftirliti á vegum friðargæslunnar, en þeim áfanga var reyndar náð á árinu 2010, þegar jöfn kynjaskipting var í hópi þátttakenda í kosningaeftirliti. Jafnréttismál eru veigamikill þáttur í starfsemi friðargæslunnar. Áhersla hefur verið lögð á að ná jafnri kynjaskiptingu í hópi sérfræðinga sem fara til starfa á vettvangi. Hlutfall kvenna af útsendum sérfræðingum hefur farið vaxandi, árið 2010 var það 45%, en í mannmánuðum var það 38%.