Klasasprengjur
Klasasprengjur eru vopnategund sem inniheldur margar smásprengjur sem hægt er að dreifa yfir stór svæði. Margar þeirra springa ekki og geta skaðað almenna borgara, ekki síst börn, mörgum árum eftir að átökum lýkur. Klasasprengjur hafa verið notaðar í ríflega fjóra áratugi í samtals 23 löndum. Yfir 70 ríki eiga klasasprengjur og 34 ríki framleiða slík vopn. Umræður um að banna eða takmarka notkun á klasasprengjum hafa lengi átt sér stað innan SÞ, í tengslum við breytingar á samningnum um viss hefðbundin vopn (sem Ísland er aðili að). Í kjölfar svonefnds Óslóarferils náðist samkomulag á árinu 2008 um gerð samnings sem bannar flestar klasasprengjur (Klasasprengjusamningurinn - CCM).
Mannúðarsjónarmið eru meginástæðan fyrir því að íslensk stjórnvöld leggjast gegn notkun klasasprengja. Engar klasasprengjur eru til á Íslandi, en íslensk stjórnvöld hafa kostað hreinsun á svæðum sem eru menguð af klasasprengjum, m.a. með framlagi sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar. Ísland hefur einnig kostað smíði á gervilimum fyrir fórnarlömb klasasprengja. Ísland styður áframhaldandi viðræður um að banna klasasprengjur á grundvelli samningsins um viss hefðbundin vopn.
Samningar
- Klasasprengjusamningurinn (CCM)
Tenglar
Uppfært: 05/09 | Athugsemdir sendist hér | Skammstafanir
