Flugskeyti
Flugskeyti geta borið kjarnavopn eða önnur gereyðingarvopn. Þau hafa pólitíska og hernaðarlega þýðingu, en samt er enginn bindandi alþjóðasamningur sem takmarkar útbreiðslu þeirra. Allsherjarþing Sameinuðu þjóanna hefur nokkrum sinnum skipað sérfræðinganefndir til þess að fjalla um flugskeyti.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun nr. 1540 (2004) sem bannar m.a. öðrum en ríkisstjórnum að þróa flugskeytiatækni, vegna hættunnar á að hún komist í hendur hryðjuverkasamtaka.
Ísland er aðili að alþjóðasamstarfi, sem miðar að því að hefta útbreiðslu eldflaugatækni, Eftirlitskerfinu með flugskeytatækni (MTCR) og Haag-atferlisreglunum um útbreiðslu skotflauga.
Ítarefni
Engin rík hefð er fyrir hugtakanotkun á þessu sviði. Þýðingar sem stuðst er við: Eldflaug = Rocket. Flugskeyti = Missile. Skotflaug = Ballistic missile. Stýriflaug = Cruise missile.
Tenglar
Uppfært: 05/09 | Athugsemdir sendist hér | Skammstafanir
