Framtíðarskýrsla: fskj. 6
FYLGISKJAL 6
Kostnaður við nýráðningu
starfsmanna utanríkisþjónustunnar
Miðað við verðlag í febrúar 1998 er launakostnaður (laun og launatengd gjöld) vegna ráðningu sendiráðsritara/deildarsérfræðings í utanríkisráðuneytinu um 3 millj. kr. á ári. Áætlaður ferða- og skrifstofukostnaður er 1,5 millj. kr. á ári. Til viðbótar kemur stofnkostnaður að fjárhæð 0,5 millj. kr. vegna húsgagnakaupa, tölvubúnaðar o.fl. Ef fjölgun kallar á breytingar á húsnæði verður stofnkostnaðurinn meiri.
Samsvarandi kostnaður vegna starfsmanns í sendiráði Íslands er 8-10 millj. kr. á ári vegna launa, húsnæðis o.fl., auk 2 millj. kr. skrifstofu- og stofnkostnaðar. Miðað er við meðalútgjöld vegna sendiráðsritara með maka og tvö börn.
