3.-5. október 2000 Ráðstefna um hafís og hafísþjónustu í Reykjavík
Ráðstefna um hafís og hafísþjónustu
Enska: The second meeting of the International Ice Charting Working Group (IICWG), will be held at Grand Hotel Reykjavik, Reykjavik, Iceland, October 3-5, 2000. The purpose of this conference is to provide a forum for focused discussion of all facets of sea ice chart production and distribution, including system design and engineering, and scientific development.
Dagana 3. – 5. október nk. verður haldin alþjóðleg ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík um hafís, hafískönnun og hafísþjónustu. Tuttugu ár eru liðin síðan alþjóðleg ráðstefna um hafís var haldin á Íslandi. Öllum er frjálst að taka þátt í væntanlegri ráðstefnu. Eru þeir sem gagn munu hafa af eða gaman eindregið hvattir til að nota tækifærið og skrá sig, svo sem náttúruvísindamenn, útvegsmenn og sjófarendur af öllu tagi, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar.
Á fjórða tug erlendra sérfræðinga frá tylft þjóðlanda munu sækja ráðstefnuna, einkum fólk viðriðið hafísþjónustu hvert í sínu landi, m.a. fjarkönnun á hafís, hafískortagerð og vöktun til öryggis fyrir skip á norðlægum slóðum. Von er á þátttakendum frá Bandaríkjunum og Kanada, Norðurlöndum, Þýskalandi, Englandi og Rússlandi. Fulltrúa suðurhvels jarðar, frá hafísþjónustu Argentínu, hefur verið boðið að taka þátt í ráðstefnunni. Ráðstefnan fer fram á ensku, en ráðstefnugjald er 6 (sex) þúsund krónur.
Veðurstofa Íslands boðar til ráðstefnunnar ásamt hafísdeildum bandarísku og kanadísku veðurstofanna. Ráðstefnan nýtur rausnarlegra styrkja frá Rannsóknadeild Bandaríkjaflota og Rannsóknarráði ríkisins hér heima. Unnið er að auknu samstarfi allra landa sem stunda rannsóknir á hafís og sigla um hafísslóðir. Aukin samvinna varð um rannsóknir á hafís og siglingaleiðir um norðlæg höf í kjölfar endaloka kalda stríðsins. Ísland liggur í þjóðleið slíkrar umferðar og er mikilvægt fyrir Íslendinga að fylgjast með þróun á þessu sviði.
Auk erinda og umræðna um hafís og alþjóðlegt samstarf verður ýmislegt til sýnis hjá veggspjöldum, svo sem nýjar bækur og nýtt íslenskt rannsóknatæki, eins konar fjarstýrður kafbátur til rannsókna neðansjávar. Þá verða flutt tvö áhugaverð hádegiserindi sinn hvorn daginn. Fyrsta dag ráðstefnunnar mun hinn íslenski afreksmaður pólanna, Haraldur Örn Ólafsson, greina í máli og myndum frá göngu sinni á hafís allt norður á Norðurpól fyrr á þessu ári. Síðasta daginn flytur forseti Íslands, dr. Ólafur Ragnar Grímsson, erindi um norðrið frá íslenskum og alþjóðlegum sjónarhóli. Forsetinn hefur af miklum skilningi stutt viðleitni íslenskra vísindamanna til að efla þátt Íslands í raunverulegum rannsóknum og hagnýtum málefnum norðurslóða.
Á ráðstefnunni verður Páll Bergþórsson veðurfræðingur og fyrrverandi veðurstofustjóri heiðraður fyrir fjölþættan skerf sinn til hafísrannsókna, veðurvísinda og rannsókna á víxláhrifum manns og náttúru. Páll hefur um sína daga verið mikill uppfræðari þjóðinni um íslenskt veðurfar og umhverfi. Er það þakkarvert en jafnframt er Páll þekktur brautryðjandi í ýmsum greinum og mikið til hans vitnað í erlendum fræðiritum.
Nánari upplýsingar um ofangreinda hafísráðstefnu veitir dr. Þór Jakobsson, verkefnisstjóri hafísrannsókna Veðurstofu Íslands. Þess má geta að einnig er unnt að "krækja" í nánari upplýsingar í hafísþættinum á vefsíðu Veðurstofunnar (www.vedur.is).
Þór Jakobsson veðurfræðingur
Veðurstofa Íslands, Bústaðavegi 9
150 Reykjavík (s. 560 0600)
