Ljósmyndasýning í tilefni af 60 ára afmæli utanríkisþjónustunnar - 10. apríl 2000
Ljósmyndasýning utanríkisráðuneytisins í stuttu máli og myndum - á ensku
Utanríkisráðuneytið stóð fyrir ljósmyndasýningu á ýmsum stöðum um land allt árið 2000 og ber hún heitið "Yfirlit yfir þróun íslenskrar utanríkisþjónustu". Sýningin var haldin í tilefni af 60 ára afmæli utanríkisþjónustunnar. Sýningin var fyrst opnuð í Þjóðarbókhlöðunni á afmælisdegi utanríkisþjónustunnar þann 10. apríl árið 2000. Utanríkisþjónustan varð til 10. apríl 1940, daginn eftir að Alþingi ákvað að konungsríkið Ísland tæki meðferð utanríkismála í sínar hendur, í kjölfar innrásar Þjóðverja inn í Danmörku í seinni heimsstyrjöld.
Segja má að ljósmyndasýningin um utanríkisþjónustuna sé tvíþætt. Annars hefur er reynt að draga fram helstu viðburðina í sögu hennar í texta og tengja við hann ljósmyndir. Hins vegar hafa verið valdar myndir af starfsfólki utanríkisþjónustunnar sem eiga að gefa hugmynd um dagleg störf þeirra. Megináherslur utanríkisþjónustunnar eru að gæta hagsmuna Íslands varðandi pólitísk mál, öryggismál, efnahags- og viðskiptamál, og menningarmál erlendis. Hún hefur komið að öllum helstu málum sem varða samskipti Íslands við erlendar þjóðir. Þar má nefna aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og varnarsamninginn við Bandaríkin, baráttuna um útfærslu fiskveiðilögsögunnar og gerð Hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna, samningagerð um tollalækkanir og fríverslun, þ.á m. aðildina að Hinu almenna samkomulagi um tolla og viðskipti (GATT), inngönguna í Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA), fríverslunarsamninginn við Efnahagsbandalag Evrópu og samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Á fyrsta starfsári utanríkisþjónustunnar 1940 var opnuð ræðisskrifstofa í New York, sendiráð í London og í Stokkhólmi. Samtals voru reknar fjórar skrifstofur erlendis, með sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Starfsmenn erlendis voru 15, auk fimm í ráðuneytinu. Töluverð breyting hefur orðið á umfangi starfa utanríkisþjónustunnar á 60 árum. Utanríkisþjónustan rekur nú starfsemi í fimm heimsálfum. Hún hefur 17 skrifstofur erlendis með 105 starfsmönnum. Í utanríkisráðuneytinu starfa 80 manns. Þegar starfsmenn erlendis eru meðtaldir er utanríkisráðuneytið fjölmennasta ráðuneyti stjórnarráðsins. Ræðisskrifstofur Íslands eru orðnar 188 í 61 landi. Þær eru skipaðar 225 ólaunuðum ræðismönnum. Ísland hefur stjórnmálasamband við hátt í 120 ríki og er í samstarfi við hátt í 90 alþjóðastofnanir. Vonast er til að ljósmyndasýningin gefi smá innsýn í þau margbreytilegu störf sem hún hefur með að gera.
