13.-14. október 2000 Landgrunnið og auðlindir þess
Hafréttarstofnun Íslands, utanríkisráðuneytið og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytin gangast fyrir ráðstefnu um
Landgrunnið og auðlindir þess
í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík, 13. og 14. október 2000
Tilgangur ráðstefnunnar er að kynna stöðu landgrunns- og olíuleitarmála á Íslandi og við Norður-Atlantshaf. Áhersla verður lögð á
- réttarstöðu landgrunnsins samkvæmt þjóðarétti,
- - þá afmörkun landgrunns á grundvelli hafréttarsamningsins sem nú er á döfinni,
- hlutverk Landgrunnsstofnunar Sameinuðu þjóðanna,
- - möguleika á olíu- eða gasfundum á íslenskum hafsvæðum,
- löggjöf um olíuleit og olíuvinnslu, þ.m.t. stjórnarfrumvarp um íslenska kolvetnisstarfsemi.
Ráðstefnan stendur yfir tvo daga, kl. 13–17 á föstudegi og kl. 9–13 á laugardegi, og er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestrar verða haldnir á íslensku, ensku eða einhverju Norðurlandamálanna.
Skráning þátttakenda fer fram hjá Hafréttarstofnun Íslands, sími 560 9939. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti.
Þátttökugjald er kr. 1.500.- og greiðist við mætingu fyrri daginn.
Dagskrá ráðstefnunnar verður sem hér segir:
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER KL. 13:00–17:00
13:00 Mæting
13:30 Ráðstefnan sett
Gunnar G. Schram, prófessor, formaður stjórnar Hafréttarstofnunar
13:40 Ávarp Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra
13:50 Ávarp Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
14.00 Ávarp Páls Skúlasonar rektors Háskóla Íslands
1. Landgrunn og alþjóðlegur hafréttur
Fundarstjóri: Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins
14:10 Hinn nýi hafréttur
Guðmundur Eiríksson dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg
14:40 Réttarstaða landgrunnsins, réttur strandríkja til landgrunns
og afmörkun íslenska landgrunnsins
Tómas H. Heiðar þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu
15:10 Kaffihlé
15:30 Hlutverk Landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna við
ákvörðun ytri marka landgrunnsins
Harald Brekke, Noregi, einn nefndarmanna Landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna
16:00 Afmörkun íslenska landgrunnsins: Tæknilegur grundvöllur
og undirbúningsstarf
Steinar Þór Guðlaugsson jarðeðlisfræðingur á Orkustofnun
16:30–17:00 Umræður
Stjórn: Gunnar G. Schram
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER KL. 9:00–13:00
2. Olíuleit og olíuvinnsla í Norður-Atlantshafi
Fundarstjóri: Þorgeir Örlygsson ráðuneytisstjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneytanna
9:00 Auðlindir á hafsbotni: Hlutverk Orkustofnunar
Þorkell Helgason Orkumálastjóri
9:10 Olíuleit og olíuvinnsla við meginlandsjaðra Norður-
Atlantshafs: Staða og horfur
Anthony G. Doré leitarstjóri, Statoil, Bretlandi
9:40 Olíuleit og olíuvinnsla við Noreg: Starfsemi og löggjöf
Harald Brekke yfirjarðfræðingur Olíustofnunar Noregs
10:10 Olíuleit við Grænland: Starfsemi og löggjöf
Hans Kristian Schønwandt forstjóri Auðlindastofnunar Grænlands
10:40 Olíuleit við Færeyjar: Starfsemi og löggjöf
Herálvur Joensen forstjóri Olíustofnunar Færeyja
11:10 Kaffihlé
11:30 Er olíu eða gas að finna á íslenskum hafsvæðum?
Karl Gunnarsson jarðeðlisfræðingur á Orkustofnun
12:00 Frumvarp til laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis
Eyvindur G. Gunnarsson deildarsérfræðingur í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytunum
12:30–13:00 Umræður
Stjórn: Sveinbjörn Björnsson yfirmaður auðlindadeildar Orkustofnunar, formaður samráðsnefndar um landgrunns- og olíuleitarmál
