Fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu og sjávarútvegsráðuneytinu 990413
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu og
sjávarútvegsráðuneytinu
_____________
Samkomulag náðist í Moskvu í dag milli samninganefnda Íslands, Noregs og Rússlands um þorskveiðar Íslendinga í Barentshafi.
Í viðræðum embættismanna landanna, var gengið frá efni tvíhliða bókana milli Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar. Bókanirnar eru gerðar á grundvelli þríhliða rammasamnings landanna sem þau urðu ásátt um í síðasta mánuði. Í þeim felst að Íslendingar fá árið 1999 8.900 lesta þorskkvóta sem skiptist til helminga milli lögsögu Noregs og Rússlands. Kvótinn samsvarar 1,86% af leyfilegum heildarafla á þorski í Barentshafi og helst það hlutfall út samningstímann. Auk þess er gert ráð fyrir 30% aukaafla. Rammasamningurinn og bókanirnar gilda í fjögur ár og framlengjast um fjögur ár í senn sé samningnum ekki sagt upp af hálfu einhvers aðilanna.
Í bókun Íslands og Noregs er gert ráð fyrir að íslensk skip veiði 4.450 lestir af þorski á þessu ári í norskri lögsögu. Norsk skip fá á þessu ári að veiða 500 lestir af löngu, keilu og blálöngu á línu í íslenskri lögsögu utan 12 mílna og sunnan 64o N og 17 þúsund lestir af loðnu í íslenskri lögsögu norðan 64o30}N á tímabilinu frá 20. júní til 15. febrúar.
Í bókun Íslands og Rússlands felst að íslensk skip geti veitt 4.450 lestir af þorski í rússneskri lögsögu á þessu ári. Þar af munu Rússar bjóða íslenskum útgerðum 37,5% eða 1.669 lestir til kaups á markaðsverði.
Í báðum bókununum er miðað við að fari leyfilegur heildarafli á þorski í Barentshafi niður fyrir 350.000 lestir falli veiðar Íslendinga úr stofninum niður sem og veiðar norskra fiskiskipa í íslenskri lögsögu.
Stefnt er að því að ráðherrar landanna þriggja undirriti samninginn og tvíhliða bókanirnar á næstunni.
13. apríl 1999
