|
28.10.2008 Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Ítalíu hefur öðlast gildi og kemur til framkvæmda 1. janúar 2009
Guðni Bragason, sendifulltrúi Íslands í sendiráðinu í Róm, veitti viðtöku fullgildingarskjali ítalskra stjórnvalda þann 14. október sl og undirritaði skjal þess efnis ásamt Giulio Maronghiu fyrir hönd utanríkisráðuneytis Ítalíu. Ísland hefur nú gert tvísköttunarsamninga við hátt í 40 ríki. Nánar >> |
|
28.10.2008 Formennska Íslands í Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA Ísland gegnir formennsku í Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, á seinni helmingi þessa árs. Samstarf EFTA-ríkjanna á sviði viðskiptamála við ríki utan hins evrópska efnahagssvæðis eru stöðugt að aukast. Þannig eru í gildi 15 fríverslunarsamningar og fleiri eru í burðarliðnum. Nánar >> |