Beint í leiðarkerfi vefsins.
|
3.6.2009 Íslensk sendinefnd á Fish Expo 2009 í Færeyjum Íslensk viðskiptasendinefnd á vegum Útflutningsráðs tók þátt í alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni Fish Expo Faroes 2009, sem haldin var í Þórshöfn dagana 26.-29. maí sl. Í sendinefndinni voru m.a. fulltrúar íslenskra fyrirtækja sem framleiða vörur og búnað fyrir veiðar og vinnslu en einnig þjónustufyrirtæki svo sem á sviði trygginga og skipahönnunar. Albert Jónsson, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum, hitti viðskiptasendinefndina á morgunverðarfundi og ræddi um þróun efnahagsmála í Færeyjum og viðskipti Íslands og Færeyja. Aðalræðismaður hélt einnig móttöku fyrir sendinefndina og fulltrúa færeyskra fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi. Móttökuna sóttu um 70 manns. Sjávarútvegssýningin Fish Expo Faroes er haldin annað hvert ár. Sýningin er metnaðarfullt átak og viðburður í Færeyjum. Nánar >> |