EFTA_-_Ukraina
24.4.2009
Formlegar fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna og Úkraínu hafnar

Formlegar fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna og Úkraínu hófust í Kíev hinn 21. apríl 2009. Viðræðurnar fóru vel af stað og greinilegt er að metnaður sé af hálfu beggja aðila til að viðræðurnar verði leiddar til lykta svo fljótt sem auðið er. Bæði Ísland og Úkraína hafi verið á meðal fyrstu ríkja heimsins til að verða illa fyrir barðinu á hinni alþjóðlegu efnahagskreppu og hafi EFTA-ríkin og Úkraína verið sammála um mikilvægi þess að skapa góð skilyrði fyrir utanríkisviðskipti ríkjanna, m.a. með það að markmiði að koma efnahagslífi þeirra á réttan kjöl.

Utanríkisráðuneytið hvetur fyrirtæki og einstaklinga til að koma á framfæri við ráðuneytið upplýsingum um viðskiptahagsmuni í Úkraínu á sviði vöru- og þjónustuviðskipta (gerð þjónustu/tollskrárnúmer vöru) sem óskað er eftir að lögð verði áhersla á í viðræðunum. Ef fyrirtæki koma sjónarmiðum sínum á framfæri tímanlega getur íslenska samninganefndin haft þau að leiðarljósi við gerð samningsins við Úkraínu.


Nánar >>