Stiklur, vefrit viðskiptasviðs
Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Kanada öðlast gildi
Hinn 1. júlí nk. mun fríverslunarsamningur milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), sem Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss eru aðilar að, og Kanada öðlast gildi. Frá sama tíma öðlast gildi tvíhliða landbúnaðarsamningar milli einstakra EFTA-ríkja og Kanada, sem gerðir voru í tengslum við fríverslunarsamninginn, þar á meðal slíkur samningur á milli Íslands og Kandada.
Samningaviðræður EFTA-ríkjanna við Kanada hófust árið 1998. Aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum var Benedikt Jónsson, sendiherra. Hlé var gert á viðræðunum árið 2000 þegar fyrir lá nánast fullgerður samningstexti þar sem EFTA-ríkin gátu ekki fallist á þá kröfu Kanada að skip og sjóför yrðu undanþegin ákvæðum um niðurfellingu tolla. Samningaviðræður hófust að nýju haustið 2006 og þeim lauk í júní 2007. Samningurinn var síðan undirritaður þann 26. janúar 2008. Í kjölfarið var hann lagður fyrir þjóðþing ríkjanna til fullgildingar. Í EFTA-ríkjunum lauk fullgildingarferlinu á síðasta ári, en í Kanada lauk því ekki fyrr en 28. apríl sl. með lokaafgreiðslu Öldungadeildar Kanadaþings.
Telja verður að samningurinn sé mikilvægur fyrir Ísland sem og önnur EFTA ríki. Í því sambandi má nefna að um er að ræða fyrsta fríverslunarsamning sem Kanada gerir við ríki í Evrópu, en þess ber þó að geta að ESB og Kanada fyrirhuga að hefja fríverslunarviðræður á næstu mánuðum.
Samningurinn mun hafa í för með sér niðurfellingu tolla á iðnaðarvörum sem Ísland framleiðir og flytur út til Kanada. Sem dæmi má nefna sjávarafurðir, útivistarfatnað, fiskikör og aðrar vörur úr plasti, vogir, vélar og tæki. Í staðinn veitir Ísland Kanada tollfrjálsan aðgang fyrir hvers kyns iðnaðarvörur. Í samningnum eru ákvæði um að taka upp viðræður um þjónustuviðskipti innan þriggja ára. Enn fremur er í samningnum að finna ákvæði um samkeppnismál, opinber útboð, samstarf hvað varðar fjárfestingar og þjónustuviðskipti auk stofnanaákvæða og ákvæða um lausn ágreiningsmála. Með tvíhliða landbúnaðarsamningi Íslands og Kanada eru tollar á tilteknum landbúnaðarvörum jafnframt lækkaðir eða felldir niður, t.d. fær Ísland bættan markaðsaðgang fyrir kindakjöt og skyr til Kanada.
Sigríður Anna Þórðardóttir, sendiherra Íslands í Kanada, hefur fylgst náið með fullgildingarferli málsins á kanadíska þinginu og var viðstödd á þingpöllum Öldungadeildar Kanadaþings þegar samningurinn kom til lokaafgreiðslu 28. apríl sl. Að sögn hennar var ákaflega ánægjulegt að verða vitni að því er þingið fullgilti samninginn. Hún telur samninginn mjög jákvæðan fyrir íslensk fyrirtæki. Í honum eru fólgin tækifæri til að auka verulega viðskipti milli Íslands og Kanada. Kanada er stórt markaðssvæði og nýleg markaðsrannsókn sýnir að viðhorf Kanadamanna gagnvart Íslandi og íslenskum vörum er afar jákvætt. Hún telur jafnframt að áhugi sé í Kanada fyrir samningnum. Í því sambandi bendir hún á að kanadíska utanríkisráðuneytið hafi staðið fyrir kynningarfundum í samvinnu við sendiráð EFTA-ríkjanna í Kanada, þar á meðal Íslands, í átta borgum Kanada 23. febrúar- 4.mars sl. Þeir kynningarfundir hafi tekist ágætlega og verið vel sóttir. Sendiherra og Hlynur Guðjónsson viðskiptafulltrúi í New York sáu um kynninguna fyrir Íslands hönd á fundunum.
Íslenskan texta fríverslunarsamningsins er að finna á slóðinni:
http://www.althingi.is/altext/135/s/0844.html
Jafnframt má finna enskan texta fríverslunarsamningsins og allra viðauka hans, ásamt texta tvíhliða landbúnaðarsamnings Íslands og Kanada, á slóðinni: http://www.efta.int/content/free-trade/fta-countries/canada

