Stiklur um menningarmál

  • Hugleikur Dagsson fangar hug Finna á bókastefnu í Turku

Hugleikur Dagsson fangar hug Finna á bókastefnu í Turku

5.10.2009

Sendiráð Íslands í Helsinki og útgáfufyrirtækið Atena stóðu sameiginlega að kynningu á listamanninum Hugleik Dagssyni á bókastefnunni í Turku í Finnlandi sem haldin var 2.– 4. október sl. Stjórn bókastefnunnar styrkti viðburðinn með því að eftirláta sendiráðinu ókeypis sýningarbás í nafni Hugleiks.

Þrjár af bókum Hugleiks Dagssonar hafa verið þýddar á finnsku og allar gefnar út af bókaforlaginu Atena. Þýðing á þeirri fjórðu er í burðarliðnum og mun hún koma út í júní 2010. Þýðandi bókanna er Ville Lähteenmäki. Hugleikur er afar vinsæll í Finnlandi og hafa bækur eftir hann selst í 25.000 eintökum sem er mjög mikið magn fyrir erlenda rithöfunda.

Á bókastefnunni í Turku tróð Hugleikur upp, las upp úr bókum sínum og svaraði spurningum um hugmyndir á bak við bækurnar og starfsaðferðir. Hann áritaði einnig bækur sínar og myndaðist löng röð við áritunarborðið. Sýningarbásinn var vel sóttur enda skreyttur með myndverkum Hugleiks sem voru einnig til sölu og höfðu textar við myndirnar verið þýddir á finnsku.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica