Fríverslunarsamningar
Fríverslunarsamningur milli Íslands og Singapúr
Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna, þ.e. Íslands, Lichtenstein, Noregs og Sviss, og Singapúr öðlaðist gildi hinn 1. janúar sl. Samningurinn markar nýtt upphaf á samskiptum Evrópu og Asíuríkja þar sem hann er fyrsti fríverslunarsamningurinn milli Evrópulanda og austur-Asíulands. Viðskipti milli EFTA-ríkjanna og Singapúr voru metin á um 1,5 milljarða Bandaríkjadala árið 2001. Samningaviðræður hófust í júlí 2001 í Osló og þeim lauk í Singapúr 8. nóvember 2002. Samningurinn var undirritaður á ráðherrafundi EFTA á Egilsstöðum 26. júní 2002.
Efnisyfirlit og samningurinn á íslensku
Athygli skal vakin á því að breytingar kunna að vera gerðar á viðaukum samningsins, sem ekki eru þýddar á íslensku.
Samninginn á ensku er að finna á vefsíðu EFTA.
Upplýsingar um sendiráð og ræðismenn Íslands gagnvart Singapúr:
Fyrirsvar er í utanríkisráðuneytinu, sem stendur hefur Ísland engan ræðismann í Singapúr.
Upplýsingar um viðskipti Íslands og Singapúr er að finna á vef Hagstofunnar.
Fríverslunarsamningur gerður: 27.06.2002
Gildistaka fríverslunarsamnings: 1.1.2003
Helstu efnisatriði fríverslunarsamningsins:
Fríverslunarsamningurinn við Singapúr er umfangsmesti samningur EFTA-ríkjanna sem nú er í gildi. Hann tekur til allra helstu viðskipta, s.s. vöru, þjónustu, fjárfestinga, opinberra innkaupa, samkeppni og hlutafélaga. Þá kveður hann á um úrlausn deilumála. EFTA-ríkin og Singapúr gerðu einnig með sér tvíhliða samninga um landbúnaðarmál sem eru hluti samninganna er varða fríverslunarsvæðið.
