Fríverslunarsamningar

Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Mexíkó

Efnisyfirlit


Athygli skal vakin á því að breytingar kunna að vera gerðar á viðaukum samningsins, sem ekki eru þýddar á íslensku.
Samninginn á ensku, ásamt viðaukum og breytingum er að finna á vefsíðu EFTA.

Upplýsingar um sendiráð og ræðismenn Íslands gagnvart Mexíkó

Upplýsingar um sendiráð og ræðismenn Mexíkó gagnvart Íslandi

Upplýsingar um viðskipti Íslands og Mexíkó er að finna á vef Hagstofunnar.

Fríverslunarsamningur gerður: 27.11.2000
Gildistaka fríverslunarsamnings: 1.10.2001

Helstu efnisatriði fríverslunarsamningsins:
Full fríverslun mun gilda í viðskiptum með iðnaðarvörur. EFTA ríkin munu fá sambærilegan aðgang og ríki ESB hafa fyrir sjávarafurðir sínar. Samningurinn inniheldur frjálsari upprunareglur en ESB hefur fyrir saltaðan þorsk. Tollur á sjávarafurðir fellur ýmist niður við gildistöku samningsins, eða er afnumin í nokkrum þrepum á nokkrum árum. Tvíhliða samningur er um viðskipti með landbúnaðarvörur, Mexíkó fær sambærilegan aðgang og ESB fyrir grænmeti og ávexti en í staðinn fær Ísland tollfrjálsan aðgang fyrir grænmeti og hross á fæti.
Grunnákvæði eru um þjónustuviðskipti og fjárfestingar, sem fela meðal annars í sér skuldbindingar um að taka ekki upp nýjar reglur sem hamli viðskiptum og þjónustu og afnám takmarkana á 10 árum.
Stefnt er að gerð tvíhliða fjárfestingarsamnings milli Íslands og Mexíkó.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica