Fríverslunarsamningar
Fríverslunarsamningur milli Íslands og Fćreyja
Efnisyfirlit og samningurinn á íslensku
- Bókanir
Upplýsingar um sendiráđ og rćđismenn Íslands gagnvart Fćreyjum
Upplýsingar um sendiráđ og rćđismenn Fćreyja gagnvart Íslandi
Upplýsingar um viđskipti Íslands og Fćreyja er ađ finna á vef Hagstofunnar.
Fríverslunarsamningur gerđur: 31.8.2005
Gildistaka fríverslunarsamnings: 1.11.2006
Helstu efnisatriđi fríverslunarsamningsins:
Međ samningnum er komiđ á fót sameiginlegu efnahagssvćđi á yfirráđasvćđum Íslands og Fćreyja. Tekur samningurinn til vöruviđskipta, ţjónustuviđskipta, frjálsrar farar fólks og búseturéttar, fjármagnsflutninga og fjárfestinga, stađfesturéttar; samkeppni, ríkiseinkasölu, ríkisađstođar og opinberra innkaupa. Mćlir samningurinn fyrir um bann viđ mismunun á grundvelli ríkisfangs, stađfestustađar eđa upprunastađar vöru innan efnislegs gildissviđs hans. Ţannig skulu Íslendingar og íslensk fyrirtćki njóta sömu réttinda í Fćreyjum og Fćreyingar og gagnkvćmt. Samningurinn er víđtćkasti viđskiptasamningur sem Ísland hefur gert.
Samningurinn tekur einnig til fullrar fríverslunar međ landbúnađarvörur. Ísland hefur aldrei áđur samiđ um fulla fríverslun međ landbúnađarvörur ţannig ađ samningurinn markar nokkur tímamót í ţeim efnum. Neysluvenjur í Fćreyjum eru um margt líkar neysluvenjum hér á landi en landbúnađur í Fćreyjum hefur ekki náđ ađ sinna eftirspurn eftir neyslu landbúnađarvara ţar í landi. Af ţeim sökum er talsverđur markađur í Fćreyjum fyrir íslenskar landbúnađarvörur.

