Fríverslunarsamningar
Fríverslunarsamningur milli Íslands og Króatíu
Efnisyfirlit og samningurinn á íslensku
Athygli skal vakin á því að breytingar kunna að vera gerðar á viðaukum samningsins, sem ekki eru þýddar á íslensku.
Samninginn á ensku, ásamt viðaukum og breytingum gerðum eftir undirritun er að finna á vefsíðu EFTA.
Upplýsingar um sendiráð og ræðismenn Íslands gagnvart Króatíu
Upplýsingar um sendiráð og ræðismenn Króatíu gagnvart Íslandi
Upplýsingar um viðskipti Íslands og Króatíu er að finna á síðum Hagstofunnar og um viðskipti EFTA ríkjanna við Króatíu á heimasíðu EFTA.
Fríverslunarsamningur gerður: 21. júní 2001
Gildistaka fríverslunarsamnings: Fyrir Króatíu og Noreg 1.4.2002, fyrir Ísland 1.8.2002, fyrir Sviss og Liechtenstein 1.9.2002
Helstu efnisatriði fríverslunarsamningsins:
Fríverslunarsamningurinn gerir ráð fyrir að full fríverslun fáist með iðnaðarvörur frá 1. janúar 2007, með lækkun tolla í áföngum á iðnaðarvörur frá EFTA löndunum. Fríverslun með fisk og aðrar sjávarafurðir er tryggð í samningnum og munu allir tollar verða afnumdir á fiskafurðir frá og með 1. janúar 2009. Þrír tvíhliða samningar voru gerðir um landbúnaðarafurðir í tengslum við fríverslunarsamninginn. Þar eru veittar verulegar tollalækkanir á ýmsum landbúnaðarafurðum. Tryggður er höfundarréttur og vörumerkja- og einkaleyfaréttur umfram það sem TRIPS sáttmálinn tryggir. Samningurinn tekur einnig til samkeppnisreglna og ríkisstyrkja.
