Tilskipun ESB um þjónustuviðskipti
Evrópusambandið samþykkti þann 12. desember 2006 tilskipun um þjónustuviðskipti, sem ætlað er að ryðja úr vegi hindrunum fyrir frjálsri þjónustustarfsemi á innri markaðinum. Utanríkisráðuneytið fylgdist grannt með mótun þessarar nýju tilskipunar enda er frjáls þjónustustarfsemi hluti af EES-samningnum. Þá fjölluðu EFTA-ríkin um tillöguna og er starfandi sérstakur vinnuhópur innan vébanda EFTA sem hefur haft það hlutverk að fara yfir efni hennar og fylgjast með þróun málsins hjá Evrópusambandinu.
Tillaga framkvæmdastjórnarinnar að tilskipun um þjónustu á innri markaðinum var lögð fram í ársbyrjun 2004. Tillagan var í fyrstu mjög umdeild á meðal aðildarríkja ESB og í Evrópuþinginu. Var tillagan m.a. gagnrýnd fyrir að stuðla að félagslegum undirboðum, kalla á aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu og draga úr neytendavernd. Vorið 2006 náðist hins vegar samkomulag milli tveggja stærstu flokkahópanna á Evrópuþinginu um að takmarka gildissvið tilskipunarinnar og fella úr tillögunni ákvæði er vörðuðu útsenda starfsmenn og heilbrigðisþjónustu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í kjölfarið fram endurskoðaða tillögu sem tók mið af framangreindu samkomulagi og hefur tillagan nú endanlega verið samþykkt.
-
Tilskipun ESB um þjónustuviðskipti (PDF, 391 Kb)
-
Samantekt um bakgrunn og efni tillögunnar (PDF 24,2 Kb)
