Stofnanir EES - Ýmsir samningar og skylt efni sem varđar stofnanir EES

Til ađ reka EES-samninginn hafa veriđ settar upp stofnanir og nefndir, annars vegar fyrir EFTA og hins vegar sameiginlega fyrir ESB og EFTA. Pólitísk forysta EES-mála er í höndum EES-ráđherraráđsins en ţar sitja ráđherrar frá öllum EES-ríkjunum. Ráđiđ, sem metur framvindu EES-samningsins og mótar stefnu, kemur til fundar tvisvar á ári.

Í sameiginlegu EES-nefndinni sitja fulltrúar framkvćmdastjórnar ESB, EES/EFTA-ríkjanna og einstakra ESB-ríkja . Nefndin ber ábyrgđ á rekstri og ţróun EES-samningsins og fellir nýjar ESB-gerđir inn í EES-samninginn. Undir sameiginlegu nefndinni starfa nokkrar undirnefndir sem hver um sig fjallar um tiltekinn hluta samningsins. Tilsvarandi undirnefndir starfa innan EFTA.

Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstóllinn. Veigamikill hluti EES-samningsins snýr ađ ţví ađ tryggja ađ honum sé framfylgt og ađ einstaklingar og fyrirtćki hvar sem er á EES-svćđinu geti sótt rétt sinn ţegar ţeim sýnist misbrestur á framfylgd samningsins eđa brotiđ á rétti sínum samkvćmt honum. Til ţess ađ sinna ţessum verkefnum starfa innan EES-samningsins tvćr stofnanir EFTA, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og EFTA- dómstóllinn. Á ESB hliđ samningsins fer framkvćmdastjórn ESB međ eftirlit og Evrópudómstóllinn međ dómsvald. Eftirlitsstofnun EFTA og framkvćmdastjórn ESB annars vegar og Evrópudómstóllinn og EFTA-dómstóllinn hins vegar skulu gćta samrćmis í gerđum sínum og úrskurđum til ađ tryggja samrćmda túlkun ákvćđa EES-samningsins. Eftirlit međ ţví ađ EFTA-löndin framfylgi ákvćđum EES-samningsins á hverjum tíma er í höndum ESA. Eftirlitsstofnunin fylgist m.a. međ ţví, međ óháđu eftirliti, hvort EFTA-ríkin standi almennt viđ skuldbindingar sínar, en tekur líka viđ umkvörtunum frá einstaklingum og fyrirtćkjum í EFTA-ríkjunum varđandi ţeirra rétt. Eftirlitsstofnunin getur efnt til dómsmála ef henni sýnist svo. EFTA-dómstóllinn hefur lögsögu í deilumálum milli EFTA-ríkjanna og mál er varđa ákvarđanir ESA. Dómstólar í EFTA-ríkjunum geta einnig leitađ eftir áliti dómstólsins um túlkun á EES-samningnum.

  • Nánari upplýsingar um hlutverk EES-ráđherraráđsins, sameiginlegu EES-nefndarinnar, ESA og EFTA-dómstólinn er ađ finna í 2. kafla skýrslu Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi utanríkisráđherra, til Alţingis frá árinu 2000 um stöđu Íslands í Evrópusamstarfi. Heiti kaflans er "tveggja stođa kerfi EES-samningsins". Á vefsetri EFTA eru einnig nánari upplýsingar um ESA og EFTA-dómstólinn.

Ýmsir samningar og skylt efni sem varđar stofnanir EES




 





Stođval