EES vefslóðir
Aðalvefsetur Evrópusambandsins Vefsetrið er á opinberum tungumálum Evrópusambandsins og hefur að geyma víðtækar upplýsingar um starfsemi sambandsins frá degi til dags.
Fastanefnd ESB gagnvart Íslandi og Noregi Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi er staðsett í Osló. Fastanefndinni var komið á fót árið 1987. Hún er fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB gagnvart stjórnvöldum á Íslandi og í Noregi.
Evrópuvefsetur norska utanríkisráðuneytisins
Á grundvelli EES-samningsins taka Íslendingar þátt í fjölmörgum samstarfsverkefnum Evrópusambandsins. Að neðan er listi yfir íslenskar skrifstofur sem veita upplýsingar um verkefnin og hafa umsjón með framkvæmd þeirra hér á landi. Tenging er yfir á vefsetur skrifstofanna.
Landsskrifstofur áætlana
Rannsóknarmiðstöð Íslands, RANNÍS hefur umsjón með Sjöundu rammaáætlun ESB á sviði rannsókna og þróunar. Meginhlutverk rammáætlunarinnar er að stuðla að framúrskarandi árangri evrópskra vísindamanna og rannsakenda. Áætluninni er skipt í fjórar meginstoðir: Samvinnu, hugmyndir, fólk og hæfileika. RANNÍS hefur einnig umsjón með ýmsum minni samstarfsverkefnum og sjóðum.
Landsskrifstofa Leonardó á Íslandi er þjónustuskrifstofa Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins. Áætluninni er ætlað að styrkja og ýta undir ný viðhorf í stefnumótun og framkvæmd starfsmenntunar í Evrópu.
Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands er Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB og sér um framkvæmd Comenius, Erasmus, og Grundtvig á Íslandi.
Evrópa unga fólksins, Youth in Action, er styrkjaáætlun fyrir fólk á aldrinum 15 til 25 ára. Áætlunin skiptist í fimm flokka: ungmennaskipti, sjálfboðaþjónustu, frumkvæðisverkefni, samstarfsverkefni og stuðningsverkefni.
MEDÍA upplýsingaþjónustan á Íslandi MEDIA áætlunin styður undirbúning og dreifingu kvikmynda, sjónvarps- og margmiðlunarefnis, ásamt þjálfun fagfólks.
Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins Menningaráætlun Evrópusambandsins, Culture programme, veitir styrki til verkefna í öllum listgreinum og á sviði menningararfleifðar auk þess að styrkja starfsemi evrópskra tengslaneta og menningarstofnana.
Byggðastofnun hefur umsjón með Norðurslóðaáætlun ESB, Northern Periphery Programme – NPP, en meginmarkmið áætlunarinnar er að efla atvinnu-, efnahags- og félagslega samvinnu á milli svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
Jafnréttisstofa hefur umsjón með framkvæmdaáætlun ESB um jafnréttismál og Daphne II, verkefnaáætlun um aðgerðir gegn ofbeldi á konum, börnum og ungmennum.
Aðrar þjónustuskrifstofur
Euro Info-skrifstofan hefur það hlutverk að vera fyrsti leitarstaður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (LMF) sem vantar upplýsingar um málefni er snerta innri markað ESB, t.d. tolla og tollkvóta, skatta o.s.frv.
Evrópsk vinnumiðlun, EURES, er samstarf um vinnumiðlun milli ríkja á Evrópska Efnahagssvæðinu. Markmiðið er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli EES-landa.
Miðstöð Evrópuupplýsinga í Háskólanum í Reykjavík (European Documentation Center - EDC). EDC er ein tegund upplýsingastofa sem starfræktar eru á vegum Evrópusambandsins og er hlutverk þeirra að miðla upplýsingum frá Evrópusambandinu.
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar Miðstöðin er þátttakandi í evrópsku samstarfsneti, Euroguidance, sem er ætlað að stuðla að auknum hreyfanleika ungs fólks í Evrópu með því að miðla upplýsingum um nám, vinnumarkað og lífskjör til íslenskra og evrópskra ráðgjafa, hvort sem þeir starfa hjá skólum, stofnunum, upplýsingastöðvum eða hjá fyrirtækjum.
Evrópumiðstöð Impru, Enterprise Europe Network, hefur það að markmiði styrkja hæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu til nýsköpunar og leiða saman þekkingu, tækni og fólk.
Gagnabankar
CORDIS Gagnabanki Evrópuverkefna, leit að samstarfsaðilum, upplýsingar um samstarfsáætlanir ofl.
PLOTEUS er rafrænn gagnabanki sem ESB hefur sett upp. Verkefnið er hluti af Leonardó áætluninni og er liður í því að auka aðgengi almennings að hagnýtum upplýsingum um nám og starfsmöguleika innan ESB.
EUROPASS er safnheiti yfir skjöl sem ætlað er auka gegnsæi menntunar og starfsreynslu og auðvelda þannig einstaklingum að sýna fram á hæfni sína og reynslu.
Erlendir fréttavefir um Evrópusamstarf
European Voice (fréttablað)



