Hvernig sé ég hvaða gerðir er búið að taka upp í EES-samninginn?

Á rúmlega mánaðarfresti er fjöldi nýrra ESB gerða sem varða innri markaðinn og fjórfrelsið svokallaða tekinn upp í EES-samninginn. Til þess að sjá hvort tiltekin ESB-gerð gildi einnig á hinu Evrópska efnahagssvæði þarf að skoða nokkra þætti.

1) Hefur viðkomandi gerð verið tekin upp í EES-samninginn?

Á EES-vefsetri utanríkisráðuneytisins má finna allar þýddar gerðir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn. Þar má slá inn númeri gerðar (sem er það sama og hjá ESB, sjá leitarsíðu sambandsins) til að athuga hvort búið sé að þýða viðkomandi gerð á íslensku.

Þó gerðin komi þar ekki upp er samt mögulegt að hún hafi verið tekin upp í EES-samninginn, þar sem þýðing gerða tekur yfirleitt nokkra mánuði. EES-vefsetrið kemur þá ekki að gagni. Í slíkum tilvikum má styðjast við yfirlit yfir allar gerðir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn af sameiginlegu EES-nefndinni (kallast JCD eða Joint Committee Decisions á ensku), flokkaðar eftir ári. Eftir að skjal hefur verið opnað má slá inn númeri ESB gerðarinnar sem um ræðir í leitarham til þess að komast að því hvort og þá með hvaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar viðkomandi gerð var tekin upp í EES-samninginn.

2) Gildistaka ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar. Aðlaganir eða undanþágur.

Í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar er kveðið á um hvenær þær gerðir sem þær innleiða í samninginn taka gildi gagnvart EES-ríkjunum. Ennfremur semja EFTA-ríkin stöku sinnum um sérstakar aðlaganir eða undanþágur frá ákveðnum ákvæðum eða jafnvel gerðum í heild sinni. Því er einnig nauðsynlegt að skoða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar til þess að öðlast fulla mynd af réttarstöðunni hverju sinni.

Eftir að númer ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, sem kveður á um að viðkomandi ESB-gerð skuli tekin upp í EES-samninginn, hefur verið fundið eftir þeirri leið sem lýst er hér að framan, er hægt að halda áfram og finna ákvarðanirnar sjálfar eftir ártali. Í ákvörðuninni má svo finna hvort einhverjar aðlaganir eða undanþágur hafi verið gerðar.

Einnig er hægt að sjá ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar á íslensku í EES-viðbætinum. Það ber þó að athuga að þýðing ákvarðananna á íslensku er yfirleitt birt nokkrum vikum eftir að ákvörðun er tekin í sameiginlegu EES-nefndinni.

 

3. Hvernig hefur gerðin verið innleidd í íslenskan rétt?

EES-gerðir eru innleiddar í íslenskan rétt á tvo vegu, með settum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Þegar gerðir eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum verða þau að hafa nægilega stoð í lögum og mega ekki vera andstæð þeim.

Á vefsetri Eftirlitsstofnunar EFTA má sjá stöðu innleiðingar eftir ríkjum og upplýsingar um hvernig viðkomandi gerð var innleidd í hverju landi (með því að smella á viðkomandi kassa).

Á vef Alþingis má svo nálgast viðkomandi lög og á reglugerðarvefnum viðkomandi stjórnvaldsfyrirmæli, til þess að sjá nákvæmlega efnislega innleiðingu gerðar hér á landi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica