Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins (EES)

Aðildarsamningur Búlgaríu og Rúmeníu að Evrópska efnahagssvæðinu var áritaður í Brussel þann 14. maí 2007.

Niðurstaða samninga fól í sér að EFTA ríkin munu fram til loka apríl 2009 auka framlög sín til Þróunarsjóðs EFTA um alls 72 milljónir evra sem renna munu til Búlgaríu (21,5 milljónir) og Rúmeníu (50,5 milljónir). Hlutdeild Íslands í þessum framlögum nemur á ársgrundvelli ríflega 130 milljónum króna. Á sama tíma felur samningurinn í sér aukinn tollfrjálsan markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir inn á markað ESB. Er annars vegar um að ræða aukinn kvóta í humri sem nemur 520 tonnum, en tollfrjáls kvóti verður samtals 570 tonn, og hins vegar fyrir karfaflök sem nemur 750 tonnum.

Alls búa rúmlega 22 milljónir manna í Rúmeníu og rúmar 7 milljónir í Búlgaríu. Samanlögð verg landsframleiðsla landanna er rúmlega 250 milljarðar Bandaríkjadala.

Á þessari síðu má finna aðildarsamning EES. Rétt er að vekja athygli á því að í viðaukum A og B við aðildarsamning EES er að finna tilvísanir til ákvæða í II, IV og V - XIV. viðauka við aðildarlög ESB. Hér er því einnig að finna aðildarsáttmála ESB og meginmál aðildarlaga ESB ásamt þessum viðaukum við aðildarlögin.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica