Skýringar við EES-vefsetrið
Hér er að finna íslenska þýðingu á EES-samningnum og þeim lagagerðum sem falla undir hann. Flest efni sem hafði verið þýtt á íslensku í júlí 2000 hefur nú verið sett inn, en samningurinn er uppfærður reglulega eftir því sem nýjar gerðir eru felldar undir hann. Tekið skal fram að þessi útgáfa EES-samningsins er ekki ,,lögformleg``, þ.e. hin opinbera útgáfa samningsins er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, en þar hafa breytingarnar ekki verið færðar á viðeigandi staði.
Samningurinn skiptist í meginmál, bókanir, viðauka og yfirlýsingar, en auk þess er kveðið á um fyrirkomulag varðandi birtingar og fleira og samningnum fylgja samþykktir og lokagerðir. Hægt er að skoða samninginn með því að smella á viðeigandi orð og eins með því að nota leitina. Til þess að skoða þær gerðir sem vísað er til í viðaukum verður að nota forritið Acrobat Reader sem sækja má með því að smella á myndina hér efst. Gerðirnar birtast þá með sömu uppsetningu og í Stjórnartíðindum EB en þær eru jafnframt gefnar út í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB á íslensku. Ekki er vitað til þess að búið sé að setja EES-texta upp með þessum hætti á vefnum á öðru tungumáli en íslensku.
Tekið skal fram að lagagerðir sem vísað er til í bókunum samningsins fram að 1. ágúst 1991 (vísað er í lagagerðir í bókunum 1, 21, 30-31 og 47), hafa ekki verið birtar í íslenskri þýðingu. Hins vegar hafa lagagerðir sem vísað er til í bókunum 30, 31 og 47 í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar verið þýddar á íslensku og stefnt er að því að birta þær á þessum vefsíðum.
EES-samningurinn tekur stöðugum breytingum við það að viðaukum og sumum bókunum við hann er breytt með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Með því að fara á vefsetur EFTA er hægt að fá samninginn uppfærðan á ensku (þ.e. reglugerðir, tilskipanir o. fl. sem vísað er til í viðaukum og bókunum). Einnig er hægt að fá yfirlit yfir ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar. Stefnt er að því að ekki líði meira en þrír mánuðir frá því textarnir eru birtir í EES-viðbætinum þar til þeir eru settir á vefsíður EFTA. Íslenska þýðingin er að jafnaði tiltæk á þessari heimasíðu þegar vinnu við hana er lokið.
Hægt er að fletta upp í Stjórnartíðindum ESB ("Official Journal") o.fl. í gagnagrunninum Eur-Lex. Þar er að finna EES-samninginn og þær gerðir, sem þar er vísað til, á öllum tungumálum ESB.

