SES nr. 122

Evrópusáttmáli um sjálfsstjórn sveitarfélaga

Strassborg, 15. X. 1985 - Safn Evrópusamninga/122
Birtist í Stjórnartíðindum C 7/1991.


Inngangur

Aðildarríki Evrópuráðsins, sem undirritað hafa sáttmála þennan,

telja að markmið Evrópuráðsins sé að ná meiri einingu meðal aðildarríkja þess í því skyni að vernda og hrinda í framkvæmd þeim hugsjónum og grundvallarreglum sem eru sameiginleg arfleifð þeirra;

telja að ein leið til þess að ná þessu marki sé gerð samninga á sviði stjórnsýslu:

telja að sveitarstjórnir séu einn af helstu hornsteinum hvers lýðræðislegs stjórnarfars:

telja að réttur þegnanna til þátttöku í stjórnun opinberra mála sé ein af þeim lýðræðislegu meginreglum sem sameiginleg er öllum aðildarríkjum Evrópuráðsins;

eru þess fullviss að eðlilegast er að njóta þessa réttar í sveitarfélögum;

eru sannfærð um að tilvist ábyrgra sveitarstjórna geti haft í för með sér stjórnsýslu sem bæði er virk og í nánum tengslum við þegnana;

vita að verndun og efling sveitarstjórna í hinum ýmsu löndum Evrópu er mikilvægt framlag til uppbyggingar þeirrar Evrópu sem byggir á meginreglum lýðræðis og valddreifingar:

staðhæfa að þetta hefur í för með sér tilvist sveitarstjórna sem hafa sér til fulltingis lýðræðislega skipaðar nefndir til ákvarðanatöku og sem hafa víðtækt sjálfsforræði að því er varðar verkefni þeirra, á hvern hátt þessi verkefni eru framkvæmd og hvernig þau eru fjármögnuð:

hafa orðið ásátt um eftirfarandi:

1. gr.
Samningsaðilar skuldbinda sig til að telja sig bundna af eftirfarandi greinum á þann hátt og að því marki sem fyrir er mælt í 12. gr. þessa sáttmála.


I. hluti

2. gr. – Stjórnskipunarlegur og lagalegur grundvöllur sjálfsstjórnar sveitarfélaga
Meginreglan um sjálfsstjórn sveitarfélaga skal viðurkennd í landslögum og í stjórnarskránni ef unnt er.

3. gr. – Hugtakið sjálfsstjórn sveitarfélaga
1. Sjálfsstjórn sveitarfélaga gefur til kynna rétt og getu sveitarstjórna til að stjórna og annast lögum samkvæmt verulegan hluta opinberra mála á eigin ábyrgð og íbúum sveitarfélagsins til hagsbóta.
2. Þessi réttur skal vera í höndum ráða eða þinga skipuðum fulltrúum kjörnum í frjálsum og leynilegum kosningum, sem byggjast á milliliðalausum, jöfnum og almennum kosningarétti, og sem geta haft á að skipa framkvæmdanefndum ábyrgum gagnvart þeim. Þetta ákvæði skal á engan hátt rýra rétt þegnanna til að fjalla um mál á borgarafundum, í þjóðaratkvæðagreiðslum eða á hvern annan hátt sem lög leyfa beina þátttöku þegnanna.

4. gr. – Sjálfsstjórnarsvið sveitarfélaga
1. Í stjórnarskrá eða lögum skal kveðið á um réttindi og skyldur sveitarstjórna í grundvallaratriðum. Þetta ákvæði skal þó ekki hindra það að sveitarstjórnum verði veitt vald og ábyrgð í sérstökum tilgangi samkvæmt lögum.
2. Sveitarstjórnir skulu lögum samkvæmt hafa heimild til þess að eigin frumkvæði að taka til meðferðar sérhvert mál sem ekki er undanþegið valdsviði þeirra eða falið öðru stjórnvaldi.
3. Opinber trúnaðarstörf skulu að öðru jöfnu vera innt af hendi af þeim stjórnvöldum sem næst standa þegnunum. Þegar trúnaðarstarf er falið öðru stjórnvaldi skal tekið tillit til umfangs og eðlis verkefnisins og þörf á aukinni virkni og hagkvæmni.
4. Það vald sem sveitarstjórn er veitt skal að öllu jöfnu vera fullt og óskorað. Það má annað stjórnvald ekki skerða eða takmarka, hvort sem um er að ræða ríkis- eða héraðsstjórnvald, nema samkvæmt heimild í lögum.
5. Þegar ríkis- eða héraðsstjórn felur sveitarstjórnum vald skal, eftir því sem unnt er, veita þeim svigrúm til að aðlaga framkvæmd þess aðstæðum í sveitarfélaginu.
6. Leita skal álits sveitarstjórna í tæka tíð og á viðeigandi hátt, ef unnt er, varðandi skipulagningu og ákvarðanir í öllum málum sem þær varða.

5. gr. – Vernd staðarmarka sveitarfélaga
Ekki skal gera breytingar á staðarmörkum sveitarfélaga án þess að leita fyrst álits viðkomandi sveitarfélaga svo sem með almennri atkvæðagreiðslu þar sem lög leyfa.

6. gr. – Viðeigandi stjórnkerfi og fjárráð sveitarstjórna vegna verkefna þeirra
1. Sveitarstjórnir verða að geta ákveðið eigið stjórnkerfi til þess að aðlaga það staðbundnum þörfum og tryggja árangursríka stjórnun, enda brjóti það ekki á bága við almennari ákvæði í lögum.
2. Ráðningarkjör starfsmanna sveitarfélaga verða að vera slík að unnt sé að ráða hæfileikafólk á grundvelli verðleika og getu. Til þess að tryggja þetta verður að veita starfsmönnum viðunandi tækifæri til þjálfunar, laun og frama í starfi.

7. gr. – Starfsskilyrði sveitarstjórnarmanna
1. Starfsskilyrði kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum skulu vera slík að þeir geti óhindrað framkvæmt skyldustörf sín.
2. Þau skulu gera ráð fyrir hæfilegu endurgjaldi vegna kostnaðar við framkvæmd þessara skyldustarfa og, þar sem það á við, hæfilegum bótum vegna tekjutaps eða greiðslu fyrir unnin störf og samsvarandi félagslega vernd.
3. Með lögum eða grundvallarreglum skal ákveða hvaða störf og athafnir skulu teljast ósamrýmanleg stöðu kjörins sveitarstjórnarmanns.

8. gr. – Eftirlit með starfsemi sveitarstjórna
1. Allt eftirlit með starfsemi sveitarstjórna má einungis framkvæma á þann hátt og í þeim tilvikum sem mælt er fyrir í stjórnarskránni eða í lögum.
2. Allt eftirlit með starfsemi sveitarstjórna skal að jafnaði aðeins beinast að því að farið sé að lögum og grundvallarreglum stjórnskipunar. Þegar hentar geta æðri stjórnvöld þó haft eftirlit með framkvæmd sveitarstjórna á verkefnum sem viðkomandi stjórnvöld hafa framselt sveitarstjórnum.
3. Eftirlit með sveitarstjórnum skal framkvæma á þann hátt að hægt sé að tryggja að íhlutun eftirlitsstjórnvalds sé í hlutfalli við mikilvægi þeirra hagsmuna sem því er ætlað að vernda.

9. gr. – Tekjustofnar sveitarfélaga
1. Sveitarstjórnum skuli tryggðir fullnægjandi tekjustofnar innan ramma hinnar opinberu fjármálastefnu og skal þeim frjálst að ráðstafa þeim að eigin vild innan valdsviðs síns.
2. Tekjustofnar sveitarstjórna skulu vera í samræmi við þau verkefni sem þeim eru falin í stjórnarskránni og lögum.
3. Að minnsta kosti hluti af tekjum sveitarstjórna skal eiga rætur sínar að rekja til staðbundinna skatta og þjónustugjalda og hafa sveitarstjórnir vald til að ákveða upphæð þeirra eftir því sem kveðið er á um í lögum.
4. Fjármálakerfið sem tiltækar tekjur sveitarstjórna grundvallast á skal vera nægjanlega fjölþætt og sveigjanlegt í eðli sínu til þess að geta haldið í við raunverulega hækkun kostnaðar við framkvæmd verkefnanna, svo sem framast er unnt.
5. Til þess að tryggja hag sveitarstjórna, sem standa verr að vígi fjárhagslega, þarf að vera fyrir hendi fyrirkomulag um jöfnun tekna eða samsvarandi aðgerðir sem hafa það markmið að leiðrétta áhrif ójafnrar tekjuskiptingar og þeirra útgjalda sem þær þurfa að standa undir. Slíkar leiðir eða aðgerðir skulu ekki draga úr athafnafrelsi sveitarstjórna innan valdsviðs þeirra.
6. Á viðeigandi hátt skal leita álits sveitarstjórna á úthlutun jöfnunargreiðslna til þeirra.
7. Framlög til sveitarstjórna skal ekki, ef unnt er, eyrnamarka til fjármögnunar á sérstökum verkefnum. Veiting framlaga skal ekki skerða grundvallarrétt sveitarstjórna til athafnafrelsis innan staðarmarka þeirra.
8. Sveitarstjórnir skulu innan marka laganna hafa aðgang að innlenda lánsfjármarkaðnum til lántöku vegna fjárfestinga.

10. gr. – Réttur sveitarstjórna til að stofna samtök
1. Sveitarstjórnum skal heimilt í starfi sínu að hafa samvinnu við og innan marka laganna að stofna til samtaka með öðrum sveitarstjórnum í því skyni að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.
2. Sérhvert ríki skal viðurkenna rétt sveitarstjórna til að eiga aðild að samtökum til verndunar og eflingar sameiginlegra hagsmuna og til að eiga aðild að alþjóðlegum samtökum sveitarstjórna.
3. Sveitarstjórnum skal heimilt, með þeim skilmálum sem settir kunna að vera í lögum, að eiga samvinnu við hliðstæða aðila í öðrum ríkjum.

11. gr. – Lögvernd sjálfsstjórnar sveitarfélaga
Sveitarstjórnir skulu hafa rétt til að leita aðstoðar dómstóla til þess að tryggja sjálfsstjórn sína og til þess að haldnar séu í heiðri þær grundvallarreglur um sjálfsstjórn sem lögfestar eru í stjórnarskránni eða löggjöf landsins.


II. hluti – Ýmis ákvæði

12. gr. – Skuldbindingar
1. Sérhver aðili skuldbindur sig til að telja sig bundinn af a.m.k. tuttugu ákvæðum í I. hluta sáttmálans, þar af skulu a.m.k. tíu vera valin úr eftirfarandi ákvæðum:
2. grein
3. grein, 1. og 2. töluliðir
4. grein, 1., 2. og 4. töluliðir
5. grein
7. grein, 1. töluliður
8. grein, 2. töluliður
9. grein, 1., 2. og 3. töluliðir
10. grein, 1. töluliður
11. grein.
2. Sérhver aðili skal tilkynna aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins um þau ákvæði sem hann hefur valið sér skv. 1. tl. þessarar greinar þegar hann afhendir fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjal sitt.
3. Sérhver aðili getur hvenær sem er síðar tilkynnt aðalframkvæmdastjóranum að hann telji sig bundinn af ákvæðum í sáttmála þessum sem hann hefur ekki þegar samþykkt í samræmi við 1. tl. þessarar greinar. Slíkar síðar gefnar skuldbindingar skulu taldar óaðskiljanlegur hluti fullgildingar, viðurkenningar eða samþykktar þess aðila sem tilkynninguna sendir og skulu þær taka gildi frá fyrsta degi þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi er aðalframkvæmdastjóra berst tilkynningin.

13. gr. – Stjórnvöld sem sáttmálinn tekur til
Grundvallarreglur sjálfsstjórnar sveitarfélaga, sem sáttmáli þessi fjallar um, taka til allra flokka sveitarstjórna sem fyrir hendi eru á landsvæði aðila. Hver aðili getur þó, þegar hann afhendir fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjal sitt, tiltekið þá flokka sveitar- eða héraðsstjórna sem hann ætlar að láta ákvæði sáttmálans taka til, eða þá flokka sem hann hyggst undanskilja ákvæðum sáttmálans. Hann getur einnig látið ákvæði sáttmálans taka til fleiri flokka sveitar- eða héraðsstjórna með síðari tilkynningu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins.

14. gr. – Ákvæði um upplýsingar
Sérhver aðili skal senda aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins allar upplýsingar er máli skipta varðandi lagasetningu og aðrar aðgerðir sem hann hefur gert í þeim tilgangi að fullnægja ákvæðum þessa sáttmála.


III. hluti

15. gr. – Undirritun, fullgilding og gildistaka
1. Aðildarríki Evrópuráðsins geta undirritað þennan sáttmála. Hann er háður fullgildingu, viðurkenningu eða samþykki. Fullgildingar-, viðurkenningar- og samþykktarskjöl skulu afhent aðalframkvæmdastjóra ráðsins til vörslu.
2. Sáttmáli þessi gengur í gildi fyrsta dag þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá því að fjögur aðildarríki Evrópuráðsins hafa lýst samþykki sínu á að vera bundin af sáttmálanum samkvæmt undanfarandi tölulið.
3. Gagnvart hverju aðildarríki sem síðar lýsir samþykki sínu á að vera bundið af honum, tekur sáttmálinn gildi fyrsta dag þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi er fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjalið er afhent.

16. gr. – Ákvæði um landssvæði
1. Sérhverju ríki er heimilt við undirritun eða við afhendingu fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals síns að tilgreina það eða þau landssvæði sem þessi sáttmáli nær til.
2. Með yfirlýsingu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins getur sérhvert ríki hvenær sem er síðar látið ákvæði þessa sáttmála ná til hvaða annars landssvæðis sem tilgreint er í yfirlýsingunni. Sáttmálinn öðlast gildi gagnvart slíku landssvæði fyrsta dag þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi er aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins berst slík yfirlýsing.
3. Sérhverja yfirlýsingu sem gefin er samkvæmt tveimur undanfarandi töluliðum má afturkalla fyrir hvert það landssvæði, sem þar er tilgreint, með tilkynningu til aðalframkvæmdastjórans. Afturköllunin öðlast gildi fyrsta dag þess mánaðar sem hefst eftir að liðnir eru sex mánuðir frá þeim degi er aðalframkvæmdastjóra berst tilkynningin.

17. gr. – Uppsögn
1. Sérhver aðili getur sagt upp sáttmála þessum hvenær sem er eftir að liðin eru fimm ár frá þeim degi að sáttmálinn gekk í gildi hvað hann varðar. Veita skal aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins sex mánaða frest. Slík uppsögn hefur þó ekki áhrif á gildi sáttmálans hvað aðra aðila varðar, að því tilskildu að þeir séu aldrei færri en fjórir.
2. Í samræmi við ákvæði undanfarandi töluliðar getur sérhver aðili sagt upp hvaða ákvæði sem er, sem hann hefur samþykkt í 1. hluta sáttmálans, að því tilskildu að aðilinn verði áfram bundinn hvað varðar fjölda og eðli þeirra ákvæða sem 1. tl. 12. gr. áskilur. Sérhver aðili sem segir upp ákvæði og fullnægir þar með ekki lengur skilyrðum 1. tl. 12. gr. telst einnig hafa sagt upp sáttmálanum.

18. gr. – Tilkynningar
Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal tilkynna aðildarríkjum Evrópuráðsins um
a - sérhverja undirritun,
b - afhendingu sérhvers fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals,
c - sérhvern gildistökudag sáttmála þessa samkvæmt 15. gr. , d sérhverja tilkynningu sem borist hefur um beitingu ákvæða 2. og 3. tl. 12. gr.,
e - sérhverja tilkynningu sem borist hefur um beitingu ákvæða 13. gr.,
f - sérhvern annan gerning, tilkynningu eða orðsendingu sem sáttmála þennan varðar.


Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað sáttmála þennan.

Gjört í Strassborg 15. október 1985 á ensku og frönsku í einu eintaki sem varðveitt skal í skjalasafni Evrópuráðsins og eru báðir textarnir
jafngildir. Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal senda staðfest endurrit til allra aðildarríkja Evrópuráðsins.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica