Inngangur

Grundvallarsamningar Evrópuráðsins

Inngangur

Evrópuráðinu er ætlað að efla samvinnu og samkennd meðal aðildarríkjanna. Hlutverk ráðsins er að standa vörð um varðveislu mannréttinda, viðhalda stöðugleika og styrkja lýðræðislega stjórnarhætti í aðildarríkjunum. Aðild að ráðinu felur í sér viðurkenningu á að viðkomandi ríki teljist uppfylla grundvallarskilyrði um lýðræðislegt stjórnarfar og virðingu fyrir mannréttindum.

Eftir lok kalda stríðsins hefur mikilvægi Evrópuráðsins vaxið og því gefist ný tækifæri til að vinna verk sitt í þágu mannréttinda og lýðræðis. Evrópuráðið gegnir mikilvægu hlutverki við aðlögun ríkja Mið- og Austur-Evrópu að lýðræðislegum stjórnarháttum, en flest þeirra hafa þegar gerst aðilar að ráðinu og taka virkan þátt í starfsemi þess.

Eitt af verkefnum Evrópuráðsins hefur verið gerð alþjóðasamninga, sem meðal annars hafa haft það að markmiði að samræma lög þeirra ríkja sem gerast aðilar að þeim og stuðla enn frekar að samvinnu þeirra. Þessi þáttur í starfi Evrópuráðsins fer ekki hátt í erli daglegrar umræðu en hefur margvíslegar skyldur í för með sér fyrir samningsríkin. Þeim ber að virða ákvæði samninganna í löggjöf sinni og við stjórnarframkvæmd. Með þessum hætti setja samningarnir mark sitt á samtíð okkar og samfélag, einkum þeir samningar sem mæla fyrir um samskipti ríkisins við þegna sína og kveða á um grundvallarréttindi þeirra. Því skiptir miklu að þessir samningar séu almenningi aðgengilegir.

Alls hefur Evrópuráðið lagt fram til undirritunar 170 samninga sem átt hafa ríkan þátt í að styrkja mannréttindi og lýðræði og efla samkennd meðal ríkja Evrópu.

Samningasafn þetta er gefið út í tilefni af fimmtíu ára afmæli Evrópuráðsins, 5. maí 1999. Það hefur að geyma valda samninga en margir þeirra eru nú í fyrsta sinn aðgengilegir á íslensku. Er það von mín að það nýtist vel öllum þeim sem láta sig varða þau fjölmörgu og umfangsmiklu mál sem Evrópuráðið fæst við.

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra


Þetta vefsvæði byggir á Eplica