Þróunarsamvinnusvið

Þróunarsamvinnusvið

Þróunarsamvinnusvið utanríkisráðuneytisins tók til starfa í janúar 2009. Undir það heyra þróunarsamvinnudeild og Íslenska friðargæslan. Þróunarsamvinnusvið annast marghliða þróunarsamvinnu Íslands sem felst í framlögum ríkisins til alþjóðastofnunar eða samtaka sem ríkistjórnir eiga aðild að, eða sjóðs sem lýtur sjálfstæðri stjórn slíkrar stofnunar . Þróunarsamvinnustofnun Íslands er sérstök stofnun sem lýtur yfirstjórn ráðuneytisins og annast tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands sem felur í sér beina samvinnu milli ríkisins og þróunarríkis.

Skipulag ráðuneytisins tekur mið af markmiði nýrra laga um að heildarsýn fáist á málaflokkinn. Stýrihópur um þróunarsamvinnu, undir forystu ráðuneytisstjóra, með þátttöku æðstu embættismanna á sviði þróunarsamvinnu sinnir innra aðhaldi og eftirliti með faglegri stefnumótun, framkvæmd og rekstri.

Samkvæmt þróunarsamvinnulögum starfar samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu og þróunarsamvinnunefnd