Tvíhliða viðskiptasamningar og samskipti
Skrifstofa viðskiptasamninga gerir tvíhliðasamninga fyrir Íslands hönd. Til tvíhliða viðskiptasamninga teljast til dæmis fjárfestingasamningar, loftferðasamningar og tvísköttunarsamningar.
Fjárfestingasamningar eru gerðir til að veita fjárfestingavernd. Ákvæði EES-samningsins tryggja rétt íslenskra fjárfesta til fjárfestinga á EES-svæðinu. Með auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja utan hefðbundinna markaðssvæða verður sífellt þýðingarmeira að gera tvíhliða samninga um vernd fjárfestinga við fleiri ríki. Þessir samningar veita erlendum fjárfestum rétt til stofnfjárfestinga, sem og fjárfestingarvernd og njóta þeir þannig lögbundinna réttinda í því ríki sem fjárfest er í.
Tvíhliða loftferðasamningar tryggja rétt flugfélaga sem skráð eru á Íslandi, til að fljúga um lofthelgi og til og frá þeim ríkjum sem samningar ná til. Samningagerð er í höndum utanríkisráðuneytisins og samgönguráðuneytisins.
Tvísköttunarsamningar eru forsenda þess að hægt sé að færa hagnað milli landa með eðlilegum hætti og komið í veg fyrir tvísköttun. Samkvæmt þessum samningum eru tekjur, sem eru upprunar í öðru samningsríki, undanþegnar skattlagningu í hinu.
-
Tvísköttunarsamningar (af vefsetri Ríkisskattstjóra)
