Þróunarmál

Þróunarsamvinna

Þróunarsamvinna

Markmið Íslands með þróunarsamvinnu er að vinna að útrýmingu fátæktar, stuðla að efnahags- og félagslegri þróun, sjálfbærri nýtingu auðlinda og framgangi hnattrænna öryggis- og umhverfismála. Alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands er ætlað að skila mælanlegum árangri til að uppræta fátækt, bæta lífsskilyrði og skapa jafnrétti, frelsi og hagsæld. Alþjóðleg þróunarsamvinna felst í marghliða og tvíhliða þróunarsamvinnu og störf í þágu friðar og mannúðar- og neyðaraðstoð.

Í allri þróunarsamvinnustarfi Íslands er miðað að að styrkja lýðræðisþróun, mannréttindi og jafnrétti. Vegna sparnaðar og hagræðingar í utanríkisráðuneytinu hafa útgjöld til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu verið dregin saman tímabundið þótt áfram sé stefnt að því að ná markmiðum alþjóðasamfélagsins til lengri tíma litið. Með niðurskurðinum lækkar kostnaður vegna þróunarsamvinnu um ríflega 1.6 milljarða króna. Framlag til þróunarsamvinnu verður 0,24% af þjóðarframleiðslu í stað 0,35% eins og stefnt hafði verið að.

  • Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) fer með tvíhliða þróunarsamvinnu. Tvíhliða þróunarsamvinna byggir á milliríkjasamningum milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórna samstarfslanda. Eitt af meginmarkmiðum tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er samvinna við lönd þar sem lífskjör eru lökust. ÞSSÍ leggur áherslu á að verkefni séu sjálfbær þar sem slíkt er unnt og stuðli að uppbyggingu þekkingar meðal heimamanna. Lengi vel beindust verkefni ÞSSÍ einkum að sjávarútvegsmálum en á síðari árum hefur félagslegum verkefnum fjölgað. Menntamálum og jarðhitaverkefnum hefur líka fjölgað. Verkefni á vegum ÞSSÍ eru unnin á forsendum samstarfslandanna, samkvæmt stefnu stjórnvalda í viðtökuríkjunum, og með hliðsjón af starfi annarra þróunarsamvinnustofnana í viðkomandi landi. Í öllum tilvikum eru verkefnin undirbúin að fengnum formlegum óskum stjórnvalda viðtökuríkis eða í samræmi við vitund þeirra og vilja.

 

  • Íslenska friðargæslan Starf í þágu friðar og friðsamleg lausn deilumála er ein af áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Þátttaka Íslands í friðargæsluverkefnum og endurreisnarstarfi á vegum Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagsins og annarra fjölþjóðastofnanna er leið fyrir Ísland til að leggja sitt af mörkum í þágu friðar. Ríkisstjórnin markaði einnig þá stefnu í upphafi kjörtímabilsins að leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Mið-Austurlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi. Starfsáætlun Íslands í málefnum Mið-Austurlanda leggur grunninn að því starfi og endurspeglar að Ísland getur, eins og önnur ríki, stuðlað að friðsamlegri lausn deilumála.

 

  • Fjölþjóða þróunarsamvinna er í höndum utanríkisráðuneytisins. Til fjölþjóða þróunarsamvinnu teljast framlög til alþjóðastofnana og þátttaka í samstarfsverkefnum sem unnin eru á fjölþjóðlegum grundvelli. Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna liggja til grundvallar hinni fjölþjóða þróunarsamvinnu. Ísland hefur lagt áherslu á stuðning við verkefni sem tengjast mannréttindum, jafnrétti kynjanna, menntun og heilsufari, konum og börnum. Þá hefur sjónum verið beint að samstarfi á sviði sjávarútvegs- og orkumála, auk viðskiptaþróunar og samstarfs við viðskiptalífið. Íslensk stjórnvöld hafa markað þá stefnu að þátttaka í marghliða samstarfi dreifist ekki á of margar stofnanir heldur leggja áherslu á stuðning og samstarf við lykilstofnanir.

 

 





Stoðval