Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Öryggis- og refisaðgerðir gagnvart ríkjum o.fl. sem Ísland framfylgir
Íslandi er skylt að framkvæma öryggis- og þvingunaraðgerðir sem ákveðnar eru af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á grundvelli VII. kafla(41. gr.) sáttmála Sameinuðu þjóðanna til að viðhalda friði og öryggi og/eða til að tryggja virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi, sbr. 1. gr. laga nr. 93/2008. Almenn ákvæði um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eru í rg. nr. 119/2009.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka undir vissar þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins (ESB). Slíkar ákvarðanir eru teknar á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja EB og EFTA-ríkjanna um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu - ÖSE (OSCE), áður Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu - RÖSE (CSCE), hefur aðeins tekið eina bindandi ákvörðun varðandi þvingunaraðgerðir sem er enn í gildi, sem er vopnasölubann gagnvart Nagorno-Karabakh-héraðinu í Aserbaídsjan.
Neðangreindar kaflafyrirsagnir geyma hlekki á vefsíðu ESB eða viðkomandi framkvæmdanefndar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, eftir því sem við á, þar sem fram koma upplýsingar um þvingunaraðgerðir þessara stofana. Þær eru innleiddar á Íslandi með reglugerðum sem vítnað er til að neðan.
- Sjá einníg: Útflutningseftirlit
Afganistan - sjá Hryðjuverkasamtök
Alþýðulýðveldið Kongó - sjá Austur-Kongó
Alþýðulýðveldið Kórea - sjá Norður-Kórea
Al-Qaida og Talíbanar - sjá Hryðjuverkasamtök
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn fyrir fyrrum lýðveldi Júgóslavíu - sjá Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu og Serbíu og Svartfjallaland
Aserbaídsjan - Nagorno-Karabakh
- Vopnasölubann (ákvörðun ÖSE (OSCE) 28.02.1992, sbr. ál. öryggisráðs SÞ nr. 853 (1993))
Austur-Kongó (ál. 1533/04) - Rg. nr. 155/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
Belarús (06/276) - Rg. nr. 902/2009
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
Bosnía og Hersegóvína (04/694) - Rg. nr. 904/2009
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
Burma - sjá Mjanmar
Congo - sjá Austur-Kongó
Côte d'Ivoire - sjá Fílabeinsströndin
Erítrea (ál. 1907/09)
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Frysting fjármuna: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Skoðunarskylda á farmi
Fílabeinsströndin (ál. 1572/04) - Rg. nr. 140/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
- Innflutningsbann á óunnum demöntum
Gereyðingarvopn (ál. 1540/04) - Rg. nr. 123/2009, sbr. rg. nr. 325/2009
- Allsherjarbann gagnvart einkaaðilum
Gínea (09/788) - Rg. nr. 995/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann
Hryðjuverkastarfsemi (ál. 1373/01) - Rg. nr. 122/2009
- Bann við fjármögnun
- Landgöngubann: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Frysting fjármuna: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
Hryðjuverkasamtök (ál. 1267/99) - Rg. nr. 154/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
Hvíta-Rússland - sjá Belarús
Írak (ál. 1518/03) - Rg. nr. 141/2009
- Vopnasölubann
- Frysting fjármuna: Listi yfir einstaklinga
- Frysting fjármuna: Listi yfir lögaðila
- Verslun með menningarverðmæti
Íran (ál. 1737/06) - Rg. nr. 146/2009
- Viðskiptabann með hergögn
- Viðskiptabann með kjarnorkubúnað: Listi (S/2006/814)
- Viðskiptabann með skotflaugabúnað: Listi (S/2006/815)
- Viðskiptabann með skotflaugabúnað: Leiðbeiningarreglur (S/2006/985)
- Landgöngubann eða tilkynningarskylda: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
- Bann við fjárhagsaðstoð
- Skoðunarskylda á farmi
Kongó - sjá Austur-Kongó
Króatía (04/694) - Rg. nr. 904/2009
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
Norður-Kórea (ál. 1718/06) - Rg. nr. 153/2009, sbr. rg. nr. 734/2009
- Vopnasölubann
- Viðskiptabann með kjarnorkubúnað: Listi (S/2006/814)
- Viðskiptabann með skotflaugabúnað: Listi (S/2006/815)
- Viðskiptabann með efna- og lífefnavopnabúnað: Listi (S/2006/853)
- Landgöngubann: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Frysting fjármuna: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Skoðunarskylda á farmi
Líbanon (ál. 1636/05) - Rg. nr. 120/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Frysting fjármuna: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
Líbería (ál. 1521/03) - Rg. nr. 148/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
Mið-Austurlönd - sjá Líbanon
Mjanmar (06/318) - Rg. nr. 911/2009
- Hergagnaviðskiptabann
- Viðskiptabann með vissar vörutegundir
- Bann við vissum þjónustuviðskiptum
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
- Bann við vissum fjárfestingum
- Stöðvun á vissri þróunaraðstoð
Moldóva (08/160) - Rg. nr. 901/2009
- Landgöngubann
Nagorno-Karabakh - sjá Aserbaídsjan
Serbía og Svartfjallaland (04/694) - Rg. nr. 904/2009
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
Síerra Leone (ál. 1132/97) - Rg. nr. 147/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
Simbabve (04/161) - Rg. nr. 903/2009
- Hergagnaviðskiptabann
- Útflutningsbann á búnaði til bælingar innanlands
- Bann við vissum þjónustuviðskiptum
- Landgöngubann
- Frysting fjármuna
Sómalía (ál. 751/92) - Rg. nr. 121/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Frysting fjármuna: Engir aðilar hafa enn verið tilgreindir
- Skoðunarskylda á farmi
Sýrland - sjá Líbanon
Súdan (ál. 1591/05) - Rg. nr. 156/2009
- Vopnasölubann
- Landgöngubann: Listi
- Frysting fjármuna: Listi
Talíbanar og Al-Qaida - sjá Hryðjuverkasamtök
Uppfært: 01/10 | Senda athugsemd | Skammstafanir | Efst á síðu | Enska

