Alþjóða og Öryggismál

Alþjóða- og öryggismál

Ísland hefur ríka hagsmuni af því að tryggja sér virk og öflug alþjóðleg tengsl og eins sterka stöðu og kostur er í alþjóðastofnunum.

Alþjóðasvið utanríkisráðuneytisins sinnir pólitískum samskiptum Íslands við erlend ríki og alþjóðastofnanir. Alþjóðleg samvinna fer aðalega fram á vettvangi alþjóðastofnana eins og Sameinuðu þjóðanna og undirstofnanna hennar sem og ýmissa svæðisbundinna stofnana eins og Öryggis og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), Evrópuráðsins og Atlandshafsbandalagsins (NATO) svo nokkrar séu nefndar.

Íslensk stjórnvöld taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Hlutverk utanríkisráðuneytisins er að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri í gegnum fastanefndir okkar í New York, Genf, Brussel, Vín, Strassborg og París.

Á vettvangi þessara stofnana kemur alþjóðasamfélagið sér saman um stefnumál, lög og reglur til að leysa deilur á friðsaman hátt, tryggja mannréttindi, draga úr fátækt og vernda umhverfið. Alþjóðasviðið skiptist í skrifstofu alþjóðamála, auðlinda og umhverfisskrifstofu, skrifstofu öryggisáætlana, varnarmálaskrifstofu, og skrifstofu þjóðréttarfræðings.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica