Málaflokkar

Málaflokkar utanríkisráðuneytisins

Ýmsar mikilvægar framfarir á Íslandi tengst alþjóðlegri viðurkenningu og þróun í samvinnu ríkja. Fullveldi var náð vegna alþjóðlegrar viðurkenningar á sjálfsákvörðunarrétti þjóða, útfærsla landhelginnar var viðurkennd vegna þróunar alþjóðlegs hafréttar, viðskiptafrelsi innleitt með aðild að alþjóðasamningum og tækniframfarir tryggðar með samskiptum við útlönd.

Nýjar alþjóðlegareglur eða ný stefna sem mótuð er með viðskiptasamningum eða á vettvangi Evrópusamruna, hjá Alþjóðastofnunum eða meðal Norðurlandaþjóða hafa bein áhrif á Íslandi, á íslenskar fjölskyldur og á íslensk fyrirtæki.

Utanríkisráðuneytið tekur þátt í alþjóðastarfi með ýmsum hætti. Viðskiptasvið utanríkisráðuneytisins gætir til dæmis hagsmuna íslenskra ríkisborgara, íslenskra fyrirtækja og neytenda með því að tryggja þeim aðgang að alþjóða mörkuðum og efla fríverslun. Auk þess styður viðskiptasviðið við íslensk fyrirtæki sem vilja hasla sér völl erlendis og kynnir menningu og listir um víða veröld. Alþjóðasvið utanríkisráðuneytisins sinnir pólitískum samskiptum Íslands við erlend ríki og innan alþjóðastofnana. Alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands er ætlað að skila mælanlegum árangri til að uppræta fátækt, bæta lífsskilyrði og skapa jafnrétti, frelsi og hagsæld í heiminum. Þá gætir borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hagsmuna og öryggis íslenskra ríkisborgara erlendis árið um kring og veitir þeim ýmis konar aðstoð s.s. þegar slys, veikindi eða andlát ber að höndum á erlendri grundu.

Alþjóða- og öryggismál Viðskipti Þróunarsamvinna
Alþjóðamál Evrópumál Fjölþjóða þróunarsamvinna
- Afvopnunarmál Viðskiptaþjónusta Íslenska friðargæslan
- Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir - Menningarmál - ÞSSÍ
Ísland og Sameinuðu þjóðirnar Viðskiptasamningar
Mannréttindi
Norræn samvinna
Svæðisbundin mál
Útflutningseftirlit
Auðlinda- og umhverfismál
Auðlindir hafsins
Loftslagsmál
Norðurslóðir
Orkumál
Svæðisbundin samvinna
Varnar- og öryggismál
Þjóðréttarmál
Hafréttarmál



 





Stoðval