Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2014 Utanríkisráðuneytið

Styrkir til frjálsra félagasamtaka vegna ebólu og annarra verkefna

Utanríkisráðuneytið hefur úthlutað styrkjum sem frjáls félagasamtök geta sótt um til utanríkisráðuneytisins vegna þróunarsamvinnu-, neyðar- og mannúðarverkefna.Verkefnin sæta faglegu mati í samræmi við verklagsreglur um samstarf utanríkisráðuneytisins og ÞSSÍ við frjáls félagasamtök sem starfa að þróunarsamvinnu, mannúðarverkefnum og neyðaraðstoð á alþjóðavettvangi og með tilliti til alþjóðlegra samþykkta í þróunarsamvinnu sem Ísland hefur undirgengist. 


Sextán umsóknir bárust alls að upphæð 247.137.686 kr. frá níu félagasamtökum, en þar af voru 42.542.846 kr. til neyðaraðstoðar og 204.594.840 kr. til þróunarsamvinnu. 

Eftirfarandi umsóknir hafa hlotið brautargengi: 

Rauði krossinn á Íslandi Ebóla í Sierra Leone                                                        25.000.000

Hjálparstarf kirkjunnar Stuðningur v fórnarlömb alnæmis í Úganda, 2. áfangi 16.584.400

ABC barnahjálp Heimavist og skóli fyrir götubörn í Naíróbí, 2. áfangi                15.000.000

SOS Barnaþorp Fjölskylduefling í Gíneu Bissá 3. áfangi.                                     10.890.705

RKÍ  Sálfélagslegt verkefni á vegum Palestínska Rauða hálfmánans                 9.715.000 

Enza Ísland Efling kvennafjölsmiðju Enza í Suður Afríku 2. áfangi                       6.500.000  

Félagið Ísland-Palestína Stuðningur við neyðarstarf á Gasa.                                4.042.846

                                                                                                                           Alls kr.: 87.732.951

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum