Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2014 Utanríkisráðuneytið

Fundað með aðstoðarutanríkisráðherra Japan

Takao Makino og Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem er einnig starfandi utanríkisráðherra, átti í dag fund með Takao Makino, aðstoðarutanríkisráðherra Japan. Ræddu ráðherrarnir náin tengsl ríkjanna og með hvaða hætti mætti efla þau enn frekar. Í því sambandi voru rædd viðskipti ríkjanna og ósk Íslands um að gera samninga við Japan um viðskiptamálefni. Á dagskrá fundarins voru einnig loftslagsmál, samstarf í jarðhitamálum auk þess sem ráðherrarnir ræddu sjávarútvegsmál.

Makino lýsti sérstökum áhuga á auknu samstarfi landanna í jarðhitamálum, en jarðhiti er einn þeirra kosta í orkumálum sem Japan horfir í auknum mæli til. Voru ráðherrarnir sammála um að þau samskipti sem átt hefðu sér stað undanfarna mánuði á þessu sviði lofuðu góðu um vaxandi samstarf ríkjanna á þessu sviði.

Einnig hitti Makino starfandi ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, Jón  Egil Egilsson, en þeir ræddu m.a. tvíhliða samskipti ríkjanna einkum á sviði viðskiptamála, þar á meðal möguleika á samningum á sviði fríverslunar, tvísköttunar og loftferða. Auk þess var fjallað um samstarf ríkjanna á norðurslóðum og á alþjóðavettvangi almennt. Stuttlega var rætt um undirbúning heimsóknar Gunnars Braga Sveinssonar til Japans sem áætluð er síðar á árinu.

Nýr sendiherra Japan, Mitsuko Shino, kemur til starfa í Reykjavík í byrjun ágúst n.k.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum