Hoppa yfir valmynd
5. júní 2012 Utanríkisráðuneytið

Niðurstaða Mannréttindanefndar SÞ í máli nr. 1306/2004


Stjórnvöldum barst í gær orðsending frá Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um að nefnd sem fjallað hefur um mál nr. 1306/2004 gegn íslenskum stjórnvöldum hafi ákveðið að loka málinu þar sem stjórnvöld hafi brugðist „með ásættanlegum hætti að hluta til“ við tilmælum nefndarinnar.
 
Hinn 15. september 2003 fóru Erlingur Sveinn Haraldsson og Örn Snævar Sveinsson þess á leit við Mannréttindanefnd SÞ að hún kannaði á grundvelli viðbótarbókunar við Alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi hvort íslensk stjórnvöld hefðu gerst brotleg við 26. gr. samningsins. Greinin kveður á um að allir skulu jafnir fyrir lögum og eiga rétt á sömu lagavernd án nokkurrar mismununar. Kváðust þeir vera lagalega skyldir til að greiða fé til forréttindahóps samborgara sinna til að geta stundað þá atvinnu sem þeir kysu, þ.e. fengju ekki úthlutuðum kvóta til fiskveiða heldur þyrftu að leigja eða kaupa hann á markaði. Í samræmi við meginreglur atvinnufrelsis og jafnréttis vildu þeir fá tækifæri til að stunda þá atvinnu að eigin vali án þess að þurfa að yfirstíga hömlur sem fælust í forréttindum fyrir aðra.
 
Nefndin fjallaði um málið í október 2007 og taldi meirihluti hennar meginálitaefnið vera hvort kærendur skyldu lögum samkvæmt skyldaðir til að greiða samborgurum sínum fé til að afla sér fiskveiðiheimilda sem væru nauðsynlegar til að eiga kost á að veiða í atvinnuskyni kvótasettar fisktegundir í eigu íslensku þjóðarinnar. Lagði nefndin þá skyldu á herðar íslenska ríkinu að greiða málskotsaðilum fullnægjandi bætur og endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið.
 
Hinn 6. júní 2008 gerðu íslensk stjórnvöld grein fyrir afstöðu sinni til málsins. Í bréfi þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einars K. Guðfinnssonar til nefndarinnar kom m.a. fram að íslensk stjórnvöld teldu sig ekki vera í stöðu til að greiða bætur til mannana né heldur að breyta fiskveiðistjórnunarkefinu umsvifalaust, en boðað var að tilmæli nefndarinnar yrðu höfð til hliðsjónar við heildstæða endurskoðun fiskveiðikerfisins. Í febrúar 2009 áréttaði sjávarútvegsráðherra Steingrímur J. Sigfússon fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að ákveðið hefði verið að styrkja mannréttindaþátt stjórnarskrárinnar og festa í sessi að auðlindir sjávar séu sameign þjóðarinnar en tók að öðru leyti undir fyrri afstöðu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum