Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2011 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra fundar um erlendar fjárfestingar í ferðaþjónustu

Hinn 24. ágúst 2011, átti Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fund með Huang Nubo, stjórnarformanni kínverska fjárfestingarfyrirtækisins Zhongkun Group.

Huang Nubo greindi ráðherranum frá fyrirætlunum fyrirtækisins um að fjárfesta í umhverfistengdri ferðaþjónustu á Íslandi, og taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu í samstarfi við íslensk stjórnvöld. Fyrirtækið hefði sérstaklega áform um hótelrekstur, bæði í Reykjavík og á Norðausturlandi. Um þessar mundir ynni fyrirtækið að verkefni fyrir norðan sem m.a. tengdust Grímsstöðum á Fjöllum og yrðu þær fyrirætlanir að veruleika hygðist fyrirtækið leggja sitt af mörkum,  í samstarfi við stjórnvöld, til að tengja saman meginsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs við land þjóðgarðsins í Jökulsárgjúfrum. Það færi vel saman við áherslur fyrirtækisins um náttúruvernd og umhverfistengda ferðaþjónustu. Ennfremur kom fram að fyrirtækið er reiðubúið til að afsala sér vatnsréttindum í Jökulsá á Fjöllum og að verkefnið yrði að öllu leyti unnið í náinni samvinnu við íslensk stjórnvöld og heimamenn.

Utanríkisráðherra sagðist fagna erlendri fjárfestingu og uppbyggingu í ferðaþjónustu, sér í lagi á landsbyggðinni, en m.a. lægi fyrir að sveitarfélagið Norðurþing hefði tekið vel í hugmyndir fyrirtækisins. Það þyrfti þó að skoða hvert verkefni vandlega í samvinnu allra hlutaðeigandi aðila og hafa náið samráð um næstu skref. Til þess væru íslensk stjórnvöld svo sannarlega reiðubúin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum