Hoppa yfir valmynd
17. mars 2011 Utanríkisráðuneytið

Ferðaviðvörun vegna Japan

Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan. Þeir sem engu að síður hyggja á ferðalög til Japan eru beðnir um að láta ráðuneytið vita um ferðaáætlanir sínar.

Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum sem eru staddir á Tókýó svæðinu eða fyrir norðan Tókýó að íhuga að flytja sig suður á bóginn þar til aðstæður skýrast. Borgaraþjónustan mun eftir atvikum liðsinna fólki við skipulag ferða en í öllu falli er fólk beðið um að láta vita um allar breytingar á högum sínum.

Ráðuneytið ráðleggur fólki áfram fylgjast með leiðbeiningum japanskra stjórnvalda og ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, sérstaklega norrænu ríkjanna.

Í kjölfar hamfaranna í Japan ríkir enn óvissuástand á ákveðnum svæðum, viðvarandi jarðskjálftahætta, auk þess sem truflanir hafa orðið á samgöngum, birgðaflutningum og í raforkukerfi. Þá er ennfremur ótryggt ástand í kjarnorkuverinu í Fukushima og geislamengun í næsta nágrenni þess. Í öryggisskyni er íslenskum ríkisborgurum eindregið ráðlagt að fara ekki inn á svæði sem er nær Fukushima kjarnorkuverinu en 80 km. Utan þess svæðis er ekki talið að um beina heilsufarsógn sé að ræða en um nánari upplýsingar er bent á upplýsingar frá Geislavörnum ríkisins http://www.gr.is/.

Hægt er að ná sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum