Hoppa yfir valmynd
21. október 2010 Utanríkisráðuneytið

Breyting á afgreiðslu stefnubirtinga erlendis

Frá og með 22. október 2010 mun milliganga um stefnubirtingar á Norðurlöndum og í fjölda annarra ríkja færast frá utanríkisráðuneytinu til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins. Þessi breyting er gerð í framhaldi af fullgildingu íslenskra stjórnvalda á Haag-samningi um birtingu erlendis á réttarskjölum og utanréttarskjölum í einkamálum og verslunarmálum frá 1965, en samningurinn kveður meðal annars á um bein samskipti miðlægra stjórnvalda í aðildarríkjum hans

Yfirlit um aðildarríki samningsins má sjá hér.

Utanríkisráðuneytið hefur áfram milligöngu um stefnubirtingar í þeim ríkjum sem ekki eru aðilar að þessum samningi.

Sérstök athygli er vakin á því að þegar óskað er eftir milligöngu dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um birtingar þarf nú að útfylla þar til gerð eyðublöð:

Nánari upplýsingar varðandi samninginn má finna á eftirfarandi heimasíðu: http://www.hcch.int/.

Samningur um birtingu erlendis á réttarskjölum og utanréttarskjölum í einkamálum og verslunarmálum á íslensku og ensku (viðhengi).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum