Gagnlegur fundur Barroso og Jóhönnu í Brussel
Jóhanna Sigurđardóttir forsćtisráđherra átti í dag fund međ José Manuel Barroso, forseta framkvćmdastjórnar Evrópusambandsins, og Olli Rehn, núverandi yfirmanni stćkkunarmála, sem mun taka viđ stöđu framkvćmdastjóra efnahags- og gjaldeyrismála innan Evrópusambandsins í nćstu viku.
Á fundinum fór forsćtisráđherra ítarlega yfir stöđu mála á Íslandi. Sérstaklega var fjallađ um Icesave máliđ og samskipti Íslands og Alţjóđagjaldeyrissjóđsins. Ráđherra lagđi áherslu á ađ afar óheppilegt og skađlegt vćri ef ađildarríki Evrópusambandsins tengdu Icesave-máliđ viđ ađra endurskođun á efnahagsáćtlun Íslands og Alţjóđagjaldeyrissjóđsins. Forsćtisráđherra lagđi jafnframt áherslu á ađ lánveitingar Alţjóđagjaldeyrissjóđsins og Norđurlandanna vćri mikilvćg forsenda endurreisnar efnahagslífsins á Íslandi. Stađa ađildarviđrćđnanna viđ Evrópusambandiđ var einnig rćdd og forsćtisráđherra lagđi áherslu á ađ máliđ fengi eđlilega međferđ.
Forsćtisráđherra átti einnig fundi međ yfirmönnum EFTA og ESA í Brussel.
Reykjavík 4. febrúar 2010

