Heimsókn utanríkisráđherra til Hírósíma
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráđuneytinu
Nr. 091
Í dag lauk heimsókn utanríkisráđherra til Japans međ för ráđherra til Hírósíma. Ţar kynnti utanríkisráđherra sér starfsemi Mazda bifreiđaverksmiđjanna, einkum og sér í lagi rannsóknar- og ţróunarverkefni Mazda í gerđ vetnisbifreiđa, og gerđi jafnframt grein fyrir vetnisvćđingaráformum íslenskra stjórnvalda. Munu möguleikar á samstarfi viđ bílaframleiđandann verđa kannađir frekar af hálfu beggja ađila á nćstu mánuđum.
Ţá heimsótti utanríkisráđherra friđarsafniđ í Hírósíma ţar sem hún kynnti sér sögu borgarinnar og lagđi blómsveig frá íslensku ţjóđinni ađ minnismerki viđ safniđ sem reist var til minningur um ţá sem létu lífiđ í kjölfar kjarnorkusprengingarinnar, sem varpađ var á borgina undir lok seinni heimsstyrjaldar.
Í gćr átti utanríkisráđherra fund međ Kozo Yamamoto, ađstođarefnahagsmálaráđherra Japan. Rćddu ráđherrarnir tvíhliđa viđskipti landanna, ásamt ţví ađ fara yfir stöđuna í Doha samningaviđrćđunum innan Alţjóđaviđskiptastofnunarinnar. Ţá átti ráđherra hádegisverđarfund međ Íslandsvinahópi ţingmanna japanska ţingsins ţar sem rćdd voru samskipti landanna.
Síđar sama dag átti utanríkisráđherra fund međ Dr. Hans J.A. van Ginkel, rektor Háskóla Sameinuđu ţjóđanna, en höfuđstöđvar háskólans eru í Tókýó. Rćddu ţau sérstaklega starfsemi jarđhita- og sjávarútvegsdeilda skólans á Íslandi og lýsti van Ginkel mikilli ánćgju međ öflugt starf ţeirra og kvađ ţćr hafa skilađ miklum árangri.
Um kvöldiđ var utanríkisráđherra gestgjafi í móttöku sem haldin var í tilefni 50 ára stjórnmálasambands Íslands og Japan. Móttökuna sóttu á fjórđa hundrađ manns, og var ţar samankominn fjöldi japanskra ţingmanna og áhrifafólk úr viđskiptalífinu, auk Íslendinga sem búsettir eru í landinu og stunda ţar nám og störf.

