18.12.2009 : Samkomulag um þróunarsjóð EFTA áritað

Ísland, Noregur, Liechtenstein og Evrópusambandið árituðu í dag drög að samningi um nýjan þróunarsjóð EFTA. Lesa meira
 

18.12.2009 : Ísland og Noregur aðilar að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna

Ísland og Noregur hafa gerst aðilar að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Samningurinn veitir flugfélögum í löndunum tveimur aukinn rétt til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna. Lesa meira
 

18.12.2009 : Samningur um stofnun sendinefndar ESB staðfestur

Samningur um stofnun sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi hefur verið staðfestur af hálfu ríkisstjórnar Íslands. Lesa meira
 
BJ_afhendir_i_Dublin

17.12.2009 : Afhending trúnaðarbréfs á Írlandi

Benedikt Jónsson, sendiherra, afhenti frú Mary McAleese, forseta Írlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Írlandi, Lesa meira
 
GM_og_KFA_EFTA_17_des_09

17.12.2009 : Efnahags- og viðskiptaráðherra sækir fund EFTA-ráðsins í Genf

Gylfi Magnússson, efnahags- og viðskiptaráðherra, sat í dag ráðherrafund Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) í Genf í fjarveru Lesa meira
 

15.12.2009 : Orku- og loftslagsdagur Norrænu ráðherranefndarinnar á EXPO

Norræna ráðherranefndin heldur norrænan-kínverskan orku- og loftslagsdag á heimssýningunni EXPO 2010 í Sjanghæ, 25. júní nk. Ráðherrar, fulltrúar fyrirtækja, vísindamenn og aðrir frá Norðurlöndunum og Kína munu taka þátt í deginum. Lesa meira
 

9.12.2009 : Samningahópar skipaðir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur skipað samningahópana tíu sem starfa munu með samninganefnd Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Lesa meira
 

4.12.2009 : Varnarmálastofnun lögð niður og verkefni flutt til fyrirhugaðs innanríkisráðuneytis

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu utanríkisríkisráðherra um að samræma niður-lagningu Varnarmálastofnunar og samþættingu verkefna hennar Lesa meira
 
Kristinn F. Árnason, sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf

3.12.2009 : Ráðherrafundur WTO í Genf, 30. nóvember til 2. desember 2009

Sjöundi ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) var haldinn í Genf í Sviss 30. nóvember til 2. desember 2009. Kristinn F. Árnason, sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf, ávarpaði fundinn fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Í ræðu Íslands var fjallað um fjármálakreppuna og áhrif hennar á efnahagslíf aðildarríkja WTO. Lesa meira
 
Stefán Skjaldarson, fastafulltrúi Íslands gagnvart ÖSE á utanríkisráðherrafundi ÖSE í desember 2009

2.12.2009 : Utanríkisráðherrafundur ÖSE í Aþenu, 1.-2. desember 2009

Utanríkisráðherrafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fór fram í Aþenu í Grikklandi 1.-2. desember 2009. Stefán Skjaldarson, fastafulltrúi Íslands gagnvart ÖSE, ávarpaði fundinn af Íslands hálfu. Lesa meira
 
Utanríkisráðherra heimsækir Spán

22.11.2009 : Utanríkisráðherra heimsækir Spán

Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra hefur undanfarna daga verið í vinnuheimsókn á Spáni, þar sem hann fundaði með spænskum ráðamönnum og kynnti sér spænskan sjávarútveg. Spánverjar taka við formennsku í ESB af Svíum nú um áramót. Lesa meira
 
Franco Frattini og Össur Skarphéðinsson

18.11.2009 : Utanríkisráðherra sækir leiðtogafund FAO

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra situr nú leiðtogafund Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm um fæðuöryggi í heiminum Lesa meira
 

17.11.2009 : Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Varnarmálastofnun birt

Í framhaldi af skoðun utanríkisráðuneytisins á rekstri Varnarmálastofnunar í júní sl. var ákveðið að óska eftir úttekt Ríkisendurskoðunar Lesa meira
 
Sendiherrar Íslands og Noregs munda sögina

16.11.2009 : Oslóar-jólatréð fellt við hátíðlega athöfn í Osló

Viðstaddir voru meðal annarra borgarstjóri Oslóar, Fabian Stang, sendiherra Noregs á Íslandi, Margit Tveiten, sendiherra Íslands í Noregi, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og íslenski presturinn í Noregi sr. Arna Grétarsdóttir. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ásamt Benitu Ferrero-Waldner, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

16.11.2009 : Utanríkisráðherra á fundi EES ráðsins

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sat í dag fundi EES ráðsins í Brussel og tók þátt í fundum með þingmannanefnd EFTA. Ráðherra ræddi framtíð EES samningsins og lýsti því að samningurinn hefði í flestum atriðum þjónað Íslendingum vel. Þá undirritaði utanríkisráðherra samkomulag við Benitu Ferrero-Waldner um stofnun sendiskrifstofu ESB í Reykjavik. Lesa meira
 

13.11.2009 : Afhending trúnaðarbréfs í Finnlandi

Elín Flygenring sendiherra afhenti 12. nóvember, forseta Finnlands Tarja Halonen trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Finnlandi. Lesa meira
 

12.11.2009 : Afhending trúnaðarbréfs á Indlandi

Guðmundur Eiríksson sendiherra afhenti hinn 11. nóvember 2009, forseta Indlands, frú Pratibha Devisingh Patil, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Indlandi Lesa meira
 

12.11.2009 : Afhending trúnaðarbréfs í Tékklandi

Stefán Skjaldarson sendiherra afhenti hinn 11. nóvember dr. Vaclav Klaus, forseta Tékklands, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi með aðsetur í Vín. Lesa meira
 
Fyrsti fundur samninganefndar vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við ESB

11.11.2009 : Fyrsti fundur samninganefndar Íslands

Samninganefnd Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið hélt sinn fyrsta fund í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ávarpaði nefndina í upphafi fundar og vísaði til álits meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um verklag, áherslur og hagsmuni Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum. Í samningnefndinni eiga sæti 18 nefndarmenn. Lesa meira
 

11.11.2009 : Norræna ráðherranefndin lýsir eftir umsóknum um styrki úr mannaskiptaáætlun opinberra starfsmanna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum

Nú er hægt að sækja um styrk í mannaskiptaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir opinbera starfsmenn á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Áætlunin styrkir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga á Norðurlöndum til þess að stunda tímabundið störf eða nám á starfsvettvangi sínum í Eistlandi, Lettlandi eða Litháen. Lesa meira
 

4.11.2009 : Samninganefnd Íslands skipuð

Utanríkisráðherra hefur skipað samninganefnd Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið Lesa meira
 

2.11.2009 : Samtöl og fundir utanríkisráðherra til að halda uppi málstað Íslands

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur átt fjölmörg samtöl á síðustu vikum og mánuðum til að vekja athygli á málstað Íslendinga og hagsmunum, við ráðherra, sendiherra, gesti úr stjórnkerfum ríkja og Evrópusambandsins Lesa meira
 
Stefán Haukur Jóhannesson

2.11.2009 : Aðalsamningamaður Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins

Utanríkisráðherra hefur falið Stefáni Hauki Jóhannessyni sendiherra að vera aðalsamningamaður Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins Lesa meira
 

30.10.2009 : Vel sóttur fundur um mansalsmál með fulltrúa ÖSE

Fjölmenni sótti fund um mansalsmál sem utanríkis- og dóms- og mannréttindaráðuneyti stóðu að í dag. Á fundum bar varamanssalsfulltrúi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, lof á aðgerðaráætlun stjórnvalda í mansalsmálum. Lesa meira
 

28.10.2009 : Utanríkisráðherra á Norðurlandaráðsþingi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra stýrði í dag fundum norrænna utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Lesa meira
 

28.10.2009 : Norrænir utanríkisráðherrar fordæma árásina á SÞ-starfsmenn í Kabúl

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og norrænir starfsbræður hans, fordæmdu í dag hina mannskæðu hryðjuverkaárás sem gerð var á starfsfólk Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í morgun. Lesa meira
 

28.10.2009 : Utanríkisráðherra fundar með formanni grænlensku landsstjórnarinnar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Kuupik Kleist, formanni grænlensku landsstjórnarinnar í tengslum við fund Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Lesa meira
 

27.10.2009 : Opinn morgunverðarfundur um aðgerðir gegn mansali

Fundurinn er haldinn í tilefni komu Evu Biaudet, mansalsfulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu Lesa meira
 
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og Michael Leigh, yfirmaður stækkunarskrifstofu ESB.

22.10.2009 : Íslensk stjórnvöld skila svörum við spurningalista framkvæmdastjórnar ESB

Öll ráðuneyti stjórnarráðsins og fjöldi undirstofnana vann að svörunum sem telja rúmlega 2600 blaðsíður, auk fylgiskjala, samtals 8870 síður. Á grundvelli svara íslenskra stjórnvalda mun framkvæmdastjórnin gefa leiðtogaráði ESB álit sitt á hvort Ísland uppfylli viðmið til að verða formlegt umsóknarríki að Evrópusambandinu. Lesa meira
 
Stefán Skjaldarson afhendir forseta Austurríkis, Dr. Heinz Fischer, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Austurríki.

14.10.2009 : Afhending trúnaðarbréfs í Austurríki

Stefán Skjaldarson afhenti hinn 14. október 2009 forseta Austurríkis, Dr. Heinz Fischer, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Austurríki Lesa meira
 

5.10.2009 : Sex loftferðasamningar áritaðir

Sex nýir loftferðasamningar voru áritaðir fyrir hönd Íslands á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

27.9.2009 : Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gerði fjármálakreppuna á Íslandi að umræðuefni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær og lýsti meðal annars megnri óánægju íslenskra stjórnvalda með að óskyldar tvíhliða deilur milli þjóða tefðu framgang efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lesa meira
 

26.9.2009 : Utanríkisráðherra fundar með breskum og hollenskum starfsbræðrum

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, og Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands, áttu í gær formlegan fund í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Lesa meira
 
Expó skálinn í Sjanghæ

25.9.2009 : Ísland fær skála á EXPO 2010 afhentan í Sjanghæ

Heimssýningin er einstakur vettvangur til að byggja upp ímynd Íslands og gefa íslenskum fyrirtækjum kost á að kynna sig á alþjóðavettvangi. Lesa meira
 
Sendiráð Íslands í Washington flyst í House of Sweden

25.9.2009 : Sendiráð Íslands í Washington flytur í nýtt húsnæði

Hið nýja aðsetur sendiráðsins verður í Sænska húsinu í Washington þar sem sendráð Svíþjóðar er einnig til húsa. Lesa meira
 

23.9.2009 : Utanríkisráðherra á leiðtogafundi S.þ. um loftslagsmál

Lagði áherslu á að bindandi samkomulag um takmörkum gróðurhúsalofttegunda næðist á Loftslagsráðstefnu S.þ. í Kaupmannahöfn í desember. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Dominque Strass-Kahn

22.9.2009 : Utanríkisráðherra fundar með Dominique Strauss-Kahn

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag formlegan fund með Dominique Strauss-Kahn aðalframkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lesa meira
 

21.9.2009 : Þátttaka utanríkisráðherra í 64. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sækir 64. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem sett verður miðvikudaginn 23. september Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar

18.9.2009 : Utanríkisráðherra Spánar segir Íslendinga hafa margt fram að færa í ESB

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar funduðu í gærkvöldi um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu á meðan stuttri Íslandsheimsókn Moratinos stóð. Lesa meira
 

11.9.2009 : Einar Gunnarsson nýr ráðuneytisstjóri

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur skipað Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1. október nk Lesa meira
 

9.9.2009 : Spurningalisti framkvæmdastjórnar ESB til Íslands

Spurningalisti framkvæmdastjórnar ESB vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB, sem afhentur var íslenskum stjórnvöldum í gær, hefur verið gerður opinber á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Olli Rehn

9.9.2009 : Olli Rehn heimsækir Ísland

Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir umsóknarferli Íslands að ESB vera mikilvægan þátt í endurreisn efnahagslífs Íslands. Fullt var út úr dyrum á fundi í dag þar sem Rehn svaraði spurningum áheyrenda. Lesa meira
 

31.8.2009 : Ísland leiðir samningaferli um málefni hafsins

Samningaviðræður um að setja á laggirnar reglubundið ferli til að meta ástand hafsins hefjast í New York undir forystu fastafulltrúa Íslands og Filippseyja. Lesa meira
 

28.8.2009 : Samkomulag um alþjóðasamning um aðgerðir hafnríkja gegn ólöglegum fiskveiðum.

Fréttatilkynning frá utanríksráðuneytinu og sjávar- og landbúnaðarráðuneytinu

Lesa meira
 
Málað andlit á Opnu húsi í ráðuneytinu á Menningarnótt 2009

24.8.2009 : Yfir 1000 manns á opnu húsi utanríkisráðuneytisins - Evrópuvefur opnaður

Yfir eitt þúsund manns lögðu leið sína í utanríkisráðuneytið á opnu húsi á laugardag. Utanríkisráðherra tók á móti gestum í anddyri og á skrifstofu sinni og opnaði ennfremur Evrópuvef ráðuneytisins. Þá var menningarkynning í ráðuneytinu sem tengist kynningu á íslensku menningar- og listalífi í sendiráðum Íslands erlendis. Lesa meira
 

21.8.2009 : Yfirlýsing utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna skora á stjórnvöld á Srí Lanka að bregðast við ástandi mannúðarmála Lesa meira
 
Utarnríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda á Íslandi

21.8.2009 : Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda á Íslandi

Össur Skarphéðinsson stýrði í dag árlegum fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem haldinn var hér á landiÖssur Skarphéðinsson stýrði í dag árlegum fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem haldinn var hér á landi Lesa meira
 

20.8.2009 : Utanríkisráðherra fundar með NATO, ESB formennsku og Eistlandi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fundaði með Anders Fogh Rasmussen, aðalframkvæmdastjóra NATO, Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar, og Urmas Paet utanríkisráðherra Eistlands. Lesa meira
 

19.8.2009 : Framkvæmdastjóri NATO heimsækir Ísland

Fyrsta heimsókn Anders Fogh Rasmussen, nýs framkvæmdastjóra NATO, til aðildarríkis bandalagsins Lesa meira
 
Expo undirritun 17 ágúst 2009

17.8.2009 : Samningur undirritaður við Icelandair í tengslum við EXPO 2010

Benedikt Jónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, undirrituðu í dag samstarfssamning í tengslum við þátttöku Íslands á heimssýningunni EXPO 2010, Lesa meira
 

7.8.2009 : Ísland meðflutningsaðili að nýrri ályktun öryggisráðs SÞ um börn í vopnuðum átökum

Þann 4. ágúst sl. samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna einróma ályktun 1882, sem lýtur að því að vernda börn í vopnuðum átökum. Ísland var eitt 43 aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna sem lögðu ályktunina fram. Lesa meira
 
Grétar Már Sigurðsson

7.8.2009 : Andlát Grétars Más Sigurðssonar, sendiherra og fyrrverandi ráðuneytisstjóra

Grétar Már Sigurðsson, sendiherra og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, andaðist í morgun, 50 ára að aldri, eftir baráttu við illvígt mein.

Lesa meira

 

30.7.2009 : Utanríkisráðherra heiðursgestur á Íslendingaslóðum

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra verður heiðursgestur í Gimli og Norður-Dakóta Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Pierre Lellouche

29.7.2009 : Evrópumálaráðherra Frakka og utanríkisráðherra ræða umsókn Íslands

Umsókn Íslands að ESB bar hæst á fundi Evrópumálaráðherra Frakka, Pierre Lellouche og Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Lesa meira
 

27.7.2009 : Utanríkisráðherrar ESB biðja framkvæmdastjórn að leggja mat á umsókn Íslands

Ráðherraráð ESB samþykkir einróma að vísa aðildarumsókn Íslands til framkvæmdastjórnar sambandsins. Lesa meira
 
Lithuania's Foreign Minister Vygaudas Usackas and Iceland's Foreign Minister Össur Skarphéðinsson

23.7.2009 : Litháíska þingið styður aðildarumsókn Íslands

Litháíska þingið samþykkti í dag samhljóða yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og önnur aðildarríki ESB hvött til að gera slíkt hið sama. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Bildt afhending júlí 2009

23.7.2009 : Utanríkisráðherra afhendir formlega aðildarumsókn í Stokkhólmi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhenti í morgun Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar og formanni ráðherraráðs Evrópusambandsins, formlega aðildarumsókn Íslands að sambandinu. Lesa meira
 

22.7.2009 : Utanríkisráðherra til fundar við Carl Bildt

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Stokkhólms þar sem hann mun eiga fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar Lesa meira
 

17.7.2009 : Umsókn Íslands um ESB-aðild komið á framfæri

Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hefur verið komið á framfæri við sænsk stjórnvöld og framkvæmdastjórn ESB. Lesa meira
 

15.7.2009 : Bakgrunnsskýrsla Hagfræðistofnunar; íslensk bú í finnsku umhverfi

Hagfræðistofnun hefur bakgrunnsskýrslu fyrir nefnd stjórnvalda og hagsmunaaðila þar sem leitast er við að leggja mat á stöðu íslenskra búa innan ESB. Lesa meira
 
Undirritun í Hamar 22. júní 2009

22.6.2009 : Utanríkisráðherra sækir utanríkisráðherrafund EFTA í Hamar

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sat í dag ráðherrafund Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) í Hamar í Noregi. Lesa meira
 

19.6.2009 : Sparnaður 2009-2010

Á næsta ári sker utanríkisráðuneytið niður rekstrarútgjöld um 10% til viðbótar áður ákveðnum sparnaði. Einnig er tilkynnt um 190 m.kr. viðbótarsparnað vegna yfirstandandi árs. Lesa meira
 

16.6.2009 : Alþjóðleg ráðstefna um ályktun öryggisráðs Sþ nr. 1325 um konur, frið og öryggi

Utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi, dagana 19.-20. júní 2009.

Lesa meira

 

15.6.2009 : Afhending trúnaðarbréfs á Filippseyjum

Stefán Lárus Stefánsson sendiherra afhenti hinn 10. júní s.l. Gloriu Macapagal-Arroyo forseta Filippseyja trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Filippseyjum Lesa meira
 

10.6.2009 : Sameiginleg fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu

Í dag fór fram í sendiráðinu í London ráðstefna um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga. Þátttakendur voru rúmlega 60, fulltrúar fiskkaupenda í Bretlandi og hagsmunaaðilar í breskum sjávarútvegi. Lesa meira
 
Norrænu utanríkisráðherrarnir funda í Reykjavík

9.6.2009 : Fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna í Reykjavík 8.-9. júní 2009

Yfirlýsing fundar utanríkisráðherra Norðurlandanna í Reykjavík 8.-9. júní 2009 Lesa meira
 

8.6.2009 : Norrænu utanríkisráðherranir funda í Reykjavík

Ráðherrarnir fimm munu ræða Stoltenberg-skýrsluna og stöðu alþjóðamála

Lesa meira
 
Frá fundi Eystrasaltsráðsins í Danmörku 3.-4. júní 2009.

5.6.2009 : Fundur Eystrasaltsráðsins í Danmörku 3.-4. júní 2009

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sat fund utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins í Danmörku dagana 3. og 4. þ.m. Eystrasaltsráðið er samvinnuvettvangur Eystrasaltsríkjanna þriggja, Norðurlandanna fimm, Þýskalands, Rússlands,Póllands og Evrópusambandsins. Lesa meira
 

2.6.2009 : Andlát aðalræðismanns Íslands í Uruguay og Argentínu

Walter Koltonski, aðalræðismaður Íslands í Uruguay og Argentínu lést sunnudaginn 31. maí s.l. eftir stutt veikindi.

Lesa meira
 
Utanríkisráðherrar Íslands og Möltu

2.6.2009 : Utanríkisráðherra á Möltu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur í dag og í gær átt fundi á Möltu, meðal annars með Lawrence Gonzi forsætisráðherra og Tonio Borg utanríkisráðherra Lesa meira
 
Undirritun loftferðasamnings milli Íslands og Tyrklands. Einar Gunnarsson skrifstofustjóri skrifstofu viðskiptasamninga og Haydar Yalcin, aðstoðarframkvæmdastjóri Flugmálastjórnar Tyrklands

27.5.2009 : Loftferðasamningur Tyrklands og Íslands áritaður

Loftferðasamningur milli Tyrklands og Íslands var áritaður í gær í utanríkisráðuneytinu. Þetta er fyrsti loftferðasamningur landanna Lesa meira
 

26.5.2009 : Stoltenberg ræðir norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum

Koma Thorvalds Stoltenbergs til Íslands er í framhaldi skýrslu sem hann vann fyrir norræna utanríkisráðherra fyrr á árinu og kynnt var í byrjun febrúar Lesa meira
 

25.5.2009 : Utanríkisráðherra fordæmir kjarnasprengingu Norður Kóreumanna

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega kjarnorkusprengingu Norður Kóreumanna Lesa meira
 

20.5.2009 : Utanríkisráðherra á fundi EES ráðsins í Brussel

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, ræddi m.a. stöðu efnahagsmála og Evrópumál í gær hjá EES ráðinu í Brussel Lesa meira
 

20.5.2009 : Stóraukið samstarf sendiráða, Útflutningsráðs og Ferðamálastofu

Utanríkisþjónustan, Útflutningsráð Íslands og Ferðamálastofa hafa hafið formlegt samstarf um kynningu á Íslandi sem ferðamannastað Lesa meira
 
Ljósmynd: Þátttakendur og skipuleggjendur námskeiðs um verksvið innlendra og alþjóðlegra stofnana sem koma að alþjóðlegri þróunarsamvinnu, friðarstarfi og neyðaraðstoð.

18.5.2009 : Fyrsta námskeiðið um þróunarsamvinnu, mannúðar- og friðarstarf

Um helgina lauk velheppnuðu námskeiði um verksvið innlendra og alþjóðlegra stofnana sem koma að alþjóðlegri þróunarsamvinnu, friðarstarfi og neyðaraðstoð. Lesa meira
 

15.5.2009 : Srí Lanka: Vernda verður óbreytta borgara - Ísland veitir 5 milljón kr. neyðaraðstoð

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skorar á stjórnvöld á Srí Lanka og baráttusamtök Tamíl Tígra að vernda óbreytta borgara í átökum stjórnarhermanna og Tamíl Tígra.

Lesa meira

 

14.5.2009 : Tillögudrög

Hér fylgir texti þeirra tillögudraga sem kynnt voru á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í gær og á fundum utanríkisráðherra með formönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og fulltrúa þinghóps Borgarahreyfingarinnar í dag. Lesa meira
 

12.5.2009 : Breskum þingmönnum gerð grein fyrir viðbrögðum Íslands við skýrslu bresku fjárlaganefndarinnar

Sendiherra Íslands í London hefur, að beiðni Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, sent öllum þingmönnum breska þingsins bréf Lesa meira
 

8.5.2009 : Utanríkisráðherra mótmælir ummælum Brown

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, bar í dag fram formlega kvörtun vegna ummæla Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands Lesa meira
 

7.5.2009 : Framtíðarsýn Höfðafundarins ekki lengur fjarlæg

Þriðji og síðasti undirbúningsfundur endurskoðunarráðstefnu samningsins um bann við útbreiðslu kjarnavopna (NPT-samningsins), stendur nú yfir í New York, en ráðstefnan sjálf verður haldin í maí á næsta ári. Lesa meira
 

5.5.2009 : Málþing um áhrif kreppunnar á ríki Afríku

Málþing um áhrif efnahagskreppunnar á ríki Afríku verður haldið á vegum Norrænu Afríkustofnunarinnar, utanríkisráðuneytisins, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands fimmtudaginn 7. maí næstkomandi. kl. 14.00 – 17.00 í Háskóla Íslands, Öskju, Sturlugötu 7, Reykjavík. Lesa meira
 
Landgrunn Íslands

30.4.2009 : Afhending greinargerðar Íslands til landgrunnsnefndar S.þ. um ytri mörk landgrunnsins utan 200 sjómílna

Í gær var afhent í New York greinargerð Íslands til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um ytri mörk landgrunnsins utan 200 sjómílna. Lesa meira
 

28.4.2009 : Áfangasigur í baráttunni gegn kynþáttamisrétti

Lokaskjal samþykkt samhljóða á Durban endurskoðunarráðstefnu um afnám kynþáttamisréttis Lesa meira
 
UNICEF

27.4.2009 : Sérfræðingur til starfa hjá Barnahjálp S.þ. í Súdan

Fulltrúi íslensku friðargæslunnar, Steinar Þ. Sveinsson, hélt í dag til starfa í Súdan í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF Lesa meira
 

22.4.2009 : Skýrsla utanríkisráðuneytisins: Ísland á norðurslóðum

Skýrsla utanríkisráðuneytisins Ísland á norðurslóðum kemur út í dag. Í henni er lagður grunnur að heildstæðri stefnu Íslands á norðurslóðum og er það í fyrsta sinn sem heildarútekt Lesa meira
 

20.4.2009 : Ný stjórn Útflutningsráðs

Utanríkisráðherra skipaði í dag nýja stjórn Útflutningsráðs. Í fyrsta sinn í 22 ára sögu ráðsins eru konur í meirihluta stjórnarinnar Lesa meira
 

17.4.2009 : Siðareglur utanríkisþjónustunnar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur undirritað siðareglur fyrir utanríkisþjónustuna, sem þegar hafa tekið gildi. Lesa meira
 

16.4.2009 : Ísland sendir athugasemdir um endurskipulagningu evrópsks fjármálakerfis

Utanríkisráðuneytið, í samráði við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið, hefur sent framkvæmdastjórn Lesa meira
 

16.4.2009 : Samstarf við Dóminíku um nýtingu jarðhita

Ísland og Dóminíka hafa undirritað viljayfirlýsingu þar sem ríkin árétta áhuga sinn á samstarfi á sviði jarðhitanýtingar. Lesa meira
 

6.4.2009 : Utanríkisráðherra lýsir áhyggjum vegna eldflaugaskots N-Kóreu

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, lýsir alvarlegum áhyggjum yfir því að stjórnvöld Norður-Kóreu hafi skotið eldflaug á loft. Lesa meira
 

5.4.2009 : Utanríkisráðherra beinir sjónum að norðurslóðum á leiðtogafundi NATO

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi norðurslóða og áframhaldandi stuðning við Afganistan í ræðu sinni á leiðtogafundinum. Lesa meira
 
Obama_OS_edited-1

5.4.2009 : Bandaríkjaforseti og utanríkisráðherra ræða jarðhitasamstarf á NATO fundi

Obama lýsir áhuga á samstarfi við Íslendinga á sviði jarðhitavinnslu Lesa meira
 

4.4.2009 : Bresk þingnefnd birtir skýrslu um áhrif hruns íslenskra banka

Fjárlaganefnd breska þingsins hefur birt skýrslu um áhrif hruns íslensku bankanna. Lesa meira
 

2.4.2009 : Utanríkisráðherra sækir leiðtogafund NATO

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sækir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem verður haldinn 3. - 4. apríl nk. Lesa meira
 
David Miliband og Össur Skarphéðinsson

31.3.2009 : Utanríkisráðherrar Íslands og Bretlands funda í Lundúnum

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund í Lundúnum með breskum starfsbróður sínum, David Miliband. Lesa meira
 
Serleyfisbill_a_ferd_og_llugi

27.3.2009 : Nýstárlegt námskeið um þróunarsamvinnu, mannúðar- og friðarstarf

Íslenska friðargæslan, Rauði krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands standa fyrir sameiginlegu námskeiði um þróunarsamvinnu, mannúðar- og friðarstarf á erlendum vettvangi. Lesa meira
 
Undirritun samnings milli utanríkisráðuneyti, Ferðamálastofu og Útflutningsráðs

26.3.2009 : Stóraukið samstarf í landkynningarmálum og undirbúningur að stofnun Íslandsstofu

Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðarráðherra, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, skrifuðu í dag undir samning Lesa meira
 
Ragnheiður Kolsöe, þróunarfulltrúi friðargæslunnar heldur ræðu við upphaf almannvarnanámskeiðs sem haldið var fyrir heimamenn í Ghor héraði

25.3.2009 : Efling norrænnar samvinnu í þróunar- og mannúðarverkefnum í Afganistan

Út er komin skýrsla um þróunar- og mannúðarstarf Norðurlandanna í Afganistan, sem veitir yfirlit yfir framlag einstaka þjóða og fjallar um hugsanleg samlegðaráhrif norrænar samvinnu á þessu sviði Lesa meira
 
Samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu

24.3.2009 : Samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu

Nýtt samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu tók til starfa í dag. Ráðið hefur ráðgefandi hlutverk við stefnumótun í þróunarmálum og fjallar um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Lesa meira
 

23.3.2009 : Afhending trúnaðarbréfs

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir afhendir forseta Grikklands trúnaðarbréf sitt. Lesa meira
 
hopmynd

20.3.2009 : Verðlaun afhent í teiknisamkeppni utanríkisráðuneytisins

Sex ungir myndlistarmenn á aldrinum 3-10 ára hlutu í dag verðlaun í teiknisamkeppni utanríkisráðuneytisins Lesa meira
 
Dómsmálaráðherra, varnarmálaráðherra Danmerkur og utanríkisráðherra

20.3.2009 : Aukið samstarf Norðurlandanna rætt á fundi með varnarmálaráðherra Dana

Nánari samvinna á Norðurslóðum var eitt af umræðunefnum á fundi Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra.

Lesa meira

 
Konur í Afganistan

18.3.2009 : Jafnrétti í Afganistan í orði en enn ekki á borði

Afganskar konur héldu upp á alþjóðlegan dag kvenna og lögðu áherslu á framtíð þar sem framlag afganskra kvenna til samfélagsins er að fullu virt. Lesa meira
 
Kosningaeftirlit Georgía

17.3.2009 : Fjórir kosningaeftirlitsmenn til Makedóníu og Móldóvu

Tveir kosningaeftirlitsmenn halda í þessari viku til Makedóníu þar sem forsetakosningar fara fram á sunnudag, 22. mars. Viku síðar fara tveir fulltrúar til Moldóvu til að fylgjast með þingkosningum sem fram fara 5. apríl. Lesa meira
 

13.3.2009 : Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009 hefst 16. mars nk. Lesa meira
 

13.3.2009 : Þróunarsjóður EFTA auglýsir eftir eftirlitsaðilum með styrktum verkefnum

Þróunarsjóður EFTA auglýsir eftir eftirlitsaðilum með verkefnum sem sjóðurinn styrkir. Umfang einstakra verkefna getur numið tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna Lesa meira
 
Úskriftarhópur Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna

12.3.2009 : Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna útskrifar 20 nemendur

Í dag útskrifuðust 20 nemendur frá 14 löndum eftir sex mánaða nám við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna Lesa meira
 

11.3.2009 : Skýrsla um áhættumat fyrir Ísland

Formaður starfshóps um áhættumat fyrir Ísland Valur Ingimundarson, prófessor, skilaði í dag skýrslu hópsins til Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra Lesa meira
 
Hjálmar Sigmarsson ásamt samstarfskonum í Sarajevo

9.3.2009 : Stuðningur við málefni kvenna í alþjóða- og þróunarstarfi íslenskra stjórnvalda

Ísland hefur stutt sérstaklega við málefni kvenna, eflingu jafnréttis, fræðslu og stuðning við mæður í sínu alþjóðastarfi og þróunaraðstoð Lesa meira
 

3.3.2009 : Sérfræðingar til starfa til Jórdaníu og Afganistan

Íslenska friðargæslan hefur sent þrjá sérfræðinga til starfa með Barnahjálp SÞ og alþjóðlegum öryggissveitum ISAF. Lesa meira
 
Fridargaeslulidi_i_Afganistan._Mynd_1

25.2.2009 : Málstofa um íslenskt alþjóðastarf

Háskólinn á Bifröst heldur málstofu miðvikudaginn 25. febrúar þar sem fjallað verður um íslenskt alþjóðastarf, Lesa meira
 
Evrópa

24.2.2009 : Minnisblað um væntanlega skýrslu ESB um fjármálamarkað

Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman minnisblað í tilefni af umræðum um væntanlega skýrslu sérfræðinga fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um fjármálamarkaðinn í Evrópu. Lesa meira
 

12.2.2009 : Háskóli Íslands og utanríkisráðuneytið undirrita samstarfssamning

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samstarfssamning á sviði fræðslu og rannsóknarstarfa í alþjóðamálum Lesa meira
 
Utanríkisráðherrar Íslands og Albaníu

12.2.2009 : Utanríkisráðherrar Íslands og Albaníu funda

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tók í dag á móti albönskum starfsbróður sínum, Lulzim Basha Lesa meira
 

12.2.2009 : Boð til ÖSE um eftirlit með þingkosningum

Fastanefnd Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, í Vín, bauð stofnuninni í dag að hafa eftirlit með kosningunum sem áætlaðar eru hér á landi í vor. Lesa meira
 

10.2.2009 : Utanríkisráðherra í viðtali hjá Sir David Frost

Efnahagsmál, evrópumál og fiskveiðar voru á meðal þess sem bar á góma í viðtali sem Sir David Frost átti við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á föstudag. Lesa meira
 

9.2.2009 : Utanríkisráðherrar Norðurlandanna álykta um Sri Lanka og Gaza

Norrænu utanríkisráðherrarnir lýstu í dag yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Sri Lanka þar sem um 250.000 óbreyttir borgarar hafa lokast inni á átakasvæðum. Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson og Thorvald Stoltenberg

9.2.2009 : Utanríkisráðherra tekur vel í tillögur Stoltenberg-skýrslunnar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag, fyrir hönd norrænna starfsbræðra sinna, við skýrslu Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs Lesa meira
 
Kristján Guy Burgess aðstoðarmaður utanríkisráðherra

2.2.2009 : Kristján Guy Burgess aðstoðarmaður utanríkisráðherra

Kristján Guy Burgess hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Lesa meira
 
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson

2.2.2009 : Ráðherraskipti

Nýr utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, tók við embætti í gær af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur Lesa meira
 
Ólöf Magnúsdóttir

30.1.2009 : Friðargæsluliði til starfa hjá Barnahjálp Sþ í Palestínu

Fulltrúi Íslensku friðargæslunnar, Ólöf Magnúsdóttir, heldur um helgina til starfa í Palestínu í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Lesa meira
 

29.1.2009 : Norðurslóðir verði vettvangur friðsamlegrar samvinnu

Mikilvægt er að norðurslóðir verði vettvangur friðsamlegrar samvinnu, ekki síst í ljósi þeirra öryggisáskorana sem blasa við á svæðinu. Lesa meira
 

27.1.2009 : Málstofa um öryggishorfur á norðurslóðum

Fimmtudaginn 29. janúar 2009 standa íslensk stjórnvöld og Atlantshafsbandalagið (NATO) fyrir málstofu um öryggishorfur á norðurslóðum undir heitinu „Security Prospects in the High North” Lesa meira

 

26.1.2009 : IRENA - alþjóðleg stofnun um orkumál

Fulltrúar 120 aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna sátu í dag í Bonn í Þýskalandi stofnfund nýrrar alþjóðastofnunar um endurnýjanlega orku, IRENA (International Renewable Energy Agency). Lesa meira
 

23.1.2009 : Loftferðasamningur við Singapúr

Undirritaður var í dag loftferðasamningur milli Íslands og Singapúr. Lesa meira
 

23.1.2009 : Ráðherra snýr heim í dag

Læknar í Stokkhólmi staðfesta að um góðkynja æxli sé að ræða, en ráðherra mun verða frá vinnu enn um sinn. Lesa meira
 

21.1.2009 : Utanríkisráðherra væntanleg heim í vikulok

Aðgerð sem utanríkisráðherra gekkst undir í Svíþjóð heppnaðist vel en ákvörðun um frekari meðferð liggur ekki fyrir. Lesa meira
 
Undirritun samstarfssamnings við Bandaríkin

15.1.2009 : Samstarfssamningur um viðskipti við Bandaríkin undirritaður

Undirritaður var í dag rammasamningur um samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna. Lesa meira
 

15.1.2009 : Heimkoma ráðherra tefst

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, verður lengur undir læknishendi í Svíþjóð en ráð var fyrir gert Lesa meira
 

12.1.2009 : Utanríkisstefna Íslands og friðarferlið í Mið-Austurlöndum

Í ljósi umræðu um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við ástandinu á Gaza hefur utanríkisráðuneytið tekið saman yfirlit yfir utanríksstefnu Íslands er varðar ástandið og friðarferlið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs.

Lesa meira
 

12.1.2009 : Ferðamenn til Bandaríkjanna sæki um rafræna ferðaheimild

Utanríkisráðneytið minnir þá sem hyggja á för til Bandaríkjanna á að frá og með deginum í dag þarf að sækja um rafræna ferðaheimild. Lesa meira
 

9.1.2009 : Afhending trúnaðarbréfs í Washington

Hjálmar W. Hannesson sendiherra hefur afhent George W. Bush Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra í Bandaríkjunum. Lesa meira
 

8.1.2009 : Afhending trúnaðarbréfs hjá Sameinuðu þjóðunum

Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, afhenti í dag Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra SÞ, trúnaðarbréf sitt. Lesa meira
 

7.1.2009 : Flutningar á sendiherrum

Eftirtaldir flutningar á sendiherrum verða í upphafi árs:

Lesa meira
 

6.1.2009 : Afhending trúnaðarbréfs í Páfagarði

Elín Flygenring, sendiherra, afhenti Benedikt XVI páfa trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Páfagarði 18. desember sl. Lesa meira
 

3.1.2009 : Utanríkisráðherra frá í 3-5 daga vegna meðferðar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku. Lesa meira
 

2.1.2009 : 12 milljónir króna í neyðaraðstoð til Palestínumanna

Vegna hörmungarástandsins á Gaza hefur utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttiir, ákveðið að veita rúmum 12 milljónum íslenskra króna til mannúðaraðstoðar Lesa meira
 

Eldri fréttir flokkaðar eftir árum






Stoðval