Ráðherrafundur EFTA í Interlaken
Í dag var haldinn ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, í Sviss.
Lesa meira
Afhending trúnaðarbréfs í Bandaríkjunum
Helgi Ágústsson, sendiherra, afhenti 9. desember 2002 George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, trúnaðarbréf.
Lesa meira
Afhending trúnaðarbréfs hjá Evrópusambandinu
Kjartan Jóhannsson, sendiherra, afhenti 24. nóvember trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu.
Lesa meira
Ræða utanríkisráðherra í Portó
Utanríkisráðherrafundur ÖSE í Portó 6.-7. desember 2002 - ræða utanríkisráðherra.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Túrkmenistan
Benedikt Jónsson, sendiherra, afhendir trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Túrkmenistan.
Lesa meira
Gerð loftferðasamninga við Asíuríki
Fundað hefur verið með yfirvöldum í Kína, Suður-Kóreu, Singapúr, Japan, Hong Kong og Macau varðandi gerð loftferðasamninga.
Lesa meira
Utanríkisráðherra fundar með utanríkisráðherrum ESB-ríkjanna
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hitti í gær og í dag í tengslum við leiðtogafund NATO í Prag, utanríkisráðherra ESB-ríkjanna og afhenti orðsendingu um afstöðu Íslands varðandi stækkun EES.
Lesa meira
Fyrsti fundur utanríkisráðherra NATO-Rússlandsráðsins frá stofnun þess í maí sl.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat í morgun fyrsta fund utanríkisráðherra NATO-Rússlandsráðsins frá stofnun þess í maí sl., en nú stendur yfir leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í Prag í Tékklandi.
Lesa meira
Hádegisverðarfundur utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Prag
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, stýrði í dag umræðum utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í vinnuhádegisverði þeirra á leiðtogafundi bandalagsins í Prag.
Lesa meira
Afhending trúnaðarbréfs hjá Evrópusambandinu
Þann 19. nóvember afhenti Kjartan Jóhannsson, sendiherra, Per Stig Møller, sitjandi forseta Evrópusambandsins, trúnaðarbréf.
Lesa meira
Afhending trúnaðarbréfs í Liechtenstein
Kjartan Jóhannsson, sendiherra, afhenti þann 13. nóvember sl. trúnaðarbréf í Liechtenstein
Lesa meira
Utanríkisráðherra sækir leiðtogafund NATO í Prag
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, mun sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Prag í Tékklandi dagana 21. - 22. nóvember nk.
Lesa meira
Nýr ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, tók í dag við starfi ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu af Sverri Hauki Gunnlaugssyni, sendiherra, sem gegnt hefur starfinu frá því í mars árið 1999. Sverrir Haukur Gunnlaugsson tekur á næstunni við starfi sendiherra Íslands í Bretlandi.
Lesa meira
Ráðherraráðstefna samfélags lýðræðisríkja
Dagana 10. til 12. nóvember var haldin í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, Ráðherraráðstefna samfélags lýðræðisríkja undir yfirskriftinni "Lýðræði: fjárfesting til friðar og velsældar".
Lesa meira
Frammistöðumat Evrópusambandsins
Árangur ESB ríkjanna við innleiðingu tilskipana í landsrétt sinn var kynntur í frammistöðumati Evrópusambandsins í dag.
Lesa meira
Ræða fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í annarri nefnd allsherjarþingsins
Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti hinn 7. nóvember ræðu um Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í annarri nefnd allsherjarþingsins.
Lesa meira
Ráðssetu Íslands í Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna lýkur
Stjórnarnefnd Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO-ráðið) kom saman í Róm dagana 28. október til 2. nóvember 2002.
Lesa meira
Fundir utanríkisráðherra Norðurlandanna í tengslum við 54. þing Norðurlandaráðs
Utanríkisráðherrar Norðurlanda héldu fund í Helsinki í dag í tengslum við 54. þing Norðurlandaráðs. Þá áttu ráðherrarnir einnig fund með forsætisnefnd ráðsins.
Lesa meira
Uppsögn loðnusamningsins
Í gær, 30. október 2002, sögðu íslensk stjórnvöld upp samningi milli Íslands, Grænlands og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen.
Lesa meira
Skipun dómara við EFTA-dómstólinn
Ríkisstjórnir EFTA-ríkjanna skipuðu í dag Þorgeir Örlygsson dómara við EFTA-dómstólinn.
Lesa meira
18. ráðsfundur EES í Luxemborg
18. ráðsfundur EES ráðsins sem er samráðsvettvangur utanríkisráðherra EFTA og EES ríkjanna og Evrópusambandsins var haldinn í dag.
Lesa meira
Ráðherrafundur Evrópusambandsins um Norðlægu víddina í Lúxemborg
Í dag var haldinn í Lúxemborg ráðherrafundur Evrópusambandsins um hina Norðlægu vídd. Í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, sat Sverrir Haukur Gunnlaugsson, ráðuneytisstjóri, fundinn.
Lesa meira
Óvissuástand í kjölfar hryðjuverka í Indónesíu
Vegna óvissuástands þess sem skapast hefur í kjölfar hryðjuverka í Suðaustur-Asíu vill utanríkisráðuneytið árétta mikilvægi þess að þeir Íslendingar sem þurfa að ferðast til þessara svæða á næstunni sýni fyllstu aðgát og fylgist grannt með þróun mála.
Lesa meira
Viðræður um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2003
Sendinefndir Íslands, Færeyja, Noregs, Rússlands og Evrópusambandsins komu saman í St. Pétursborg dagana 15-17 október sl. til að ræða um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2003.
Lesa meira
Svavar Gestsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Albaníu
Svavar Gestsson sendiherra afhendir 17. október 2002 Alfred Moisiu forseta Albaníu trúnaðarbréf.
Lesa meira
Kosningaeftirlit í Kosóvó
Sveitarstjórnarkosningar fara fram í Kosóvó-héraði laugardaginn 26. október næstkomandi. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, hefur yfirumsjón með kosningunum.
Lesa meira
Utanríkisráðherra í veikindaleyfi
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, gekkst undir aðgerð í morgun, á Landspítala háskólasjúkrahúsi, vegna meins í blöðruhálskirtli. Meinið var staðbundið og gekk aðgerðin mjög vel.
Lesa meira
Vefrit viðskiptaskrifstofu
Stiklur, nýtt vefrit viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins hefur göngu sína.
Lesa meira
Ræða fastafulltrúa um réttindi barna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, hélt í gær ræðu um réttindi barna fyrir Íslands hönd í þriðju nefnd allsherjarþingsins, þar sem fjallað er um félags- og mannréttindamál.
Lesa meira
Breytingar á skipan sendiherra í utanríkisþjónustunni
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að gera eftirfarandi breytingar á skipan sendiherra í utanríkisþjónustunni.
Lesa meira
Ræða varafastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum um ofbeldi og misrétti gagnvart konum
Gréta Gunnarsdóttir, varafastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, hélt í gær ræðu fyrir Íslands hönd í þriðju nefnd allsherjarþingsins, þar sem fjallað er um félags- og mannréttindamál.
Lesa meira
Opnun ræðisskrifstofa í Múrmask
Í dag fór fram formleg opnun ræðisskrifstofu Íslands í Múrmansk.
Lesa meira
Ráðstefna um viðskipti Íslands og Bandaríkjanna í New York
24. október n.k. hefst í Norræna húsinu í New York ráðstefna um viðskipti Íslands og Bandaríkjanna í samráði við verslunarráð Íslands og Ameríku. Sama dag verður opnuð sýning helguð aldarafmæli Halldórs Laxness og efnt til málþings um skáldið og verk hans auk þess sem kvikmyndir gerðar eftir sögum hans verða sýndar.
Lesa meira
Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu
Í dag tók Ísland við formennsku í Norðurskautsráðinu á fundi utanríkisráðherra ráðsins í Inari í Finnlandi. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd. Ísland gegnir formennskunni í tvö ár og verður skrifstofa ráðsins starfrækt í utanríkisráðuneytinu á því tímabili.
Lesa meira
Flugumferðastjórar á vegum Íslensku friðargæslunnar á leið til Kósóvó
Átta flugumferðarstjórar á vegum Íslensku friðargæslunnar fara til Kósóvó í dag, fimmtudaginn 10. október 2002, til að taka við flugumferðarstjórn flugvallarins í Pristina.
Lesa meira
Greinargerð um rétt Íslands samkvæmt EES-samningnum til þátttöku í nefndum ESB
Í morgun lagði Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, fram minnisblað í ríkisstjórn ásamt greinargerð um rétt Íslands samkvæmt EES-samningnum til þátttöku í nefndum á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Lesa meira
Viðskiptaviðræður við Færeyinga
Í dag fóru fram viðræður í Þórshöfn á milli Íslands og Færeyja skv. fríverslunarsamningi þjóðanna. Á fundinum var farið yfir viðskipti landanna og möguleika á því að auka þau.
Lesa meira
Ráðstefna um Snorra Sturluson í Búlgaríu
Alþjóðleg ráðstefna um Snorra Sturluson og rætur norrænna bókmennta verður haldin í Búlgaríu, dagana 14. - 16. október næstkomandi. Á ráðstefnunni munu íslenskir og erlendir sérfræðingar fjalla um mikilvægi Snorra sem rithöfundar í fortíð og nútíð. Jafnframt verður opnuð sýning helguð aldarafmæli Halldórs Laxness.
Lesa meira
Kosningaeftirlit í Bosníu
Þrír Íslendingar eru sendir í kosningaeftirlit á vegum ÖSE í Bosníu-Hersegóvínu.
Lesa meira
Afmörkun hafsvæðisins milli Íslands og Færeyja
Á fundi Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og Anfinn Kallsberg, lögmanns Færeyja, í Þórshöfn í dag náðist samkomulag um afmörkun umdeilda hafsvæðisins milli Íslands og Færeyja.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisráðherra Suður-Kóreu
Utanríkisráðherra Suður-Kóreu, Sung-hong Choi, kemur í opinbera heimsókn til Íslands 26. - 28. september næstkomandi.
Lesa meira
Heimsókn forseta utanríkismálastofnunar Kína til Íslands
Forseti utanríkismálastofnunar Kína, Mei Zhaorong, kemur í heimsókn til Íslands 25.-28. september á vegum utanríkisráðuneytisins.
Lesa meira
Umsýslustofnun varnarmála hættir starfsemi
Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi við sölu á afgangsvörum varnarliðsins og starfsmanna þess.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisráðherra Suður Afríku til Íslands
Utanríkisráðherra Suður-Afríku mun halda fyrirlestur um svæðisbundna þróunarsamvinnu í Afríku á vegum Háskóla Íslands, mánudaginn 23. september í Háskólabíó.
Lesa meira
Íslendingur í framkvæmdastjórn WHO
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamála-ráðuneytinu, var í morgun kosinn í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar (WHO) með miklum yfirburðum.
Lesa meira
Ræða utanríkisráðherra á 57. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, flutti í dag ræðu í almennu umræðunni í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann gerði einkum að umræðuefni baráttuna gegn hryðjuverkum, vanvirðingu Íraksstjórnar við ályktanir Sameinuðu þjóðanna.
Lesa meira
Fundir utanríkisráðherra í New York
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat á laugardag fund utanríkisráðherra Norðurlanda sem haldinn var í New York. Hann átti einnig fundi með Elisabeth Jones, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem fer með málefni Evrópuríkja, og utanríkisráðherrum Króatíu, Búlgaríu og El Salvador.
Lesa meira
Viðtalstímar við fulltrúa í sendiskrifstofum Íslands erlendis sem sinna viðskiptamálum
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við fulltrúa í sendiskrifstofum Íslands erlendis sem sinna viðskiptamálum.
Lesa meira
Ræðismaður skipaður í Lilongwe höfuðborg Malaví
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í Lilongwe, höfuðborg Malaví, en þar hefur ekki verið íslenskur ræðismaður áður.
Lesa meira
Ræðisskrifstofa opnuð í Aveiro í Portúgal
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í Aveiro í Portúgal, en þar hefur ekki verið íslenskur ræðismaður áður.
Lesa meira
Ræðisskrifstofa opnuð í Tehran
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í Tehran, höfuðborg Íran, en þar hefur ekki verið starfrækt ræðisskrifstofa um árabil.
Lesa meira
Utanríkisráðherrafundur í Tallin
Norrænu ráðherrarnir ræddu einkum um samráð Norðurlanda um málefni ESB og EES, þar með talið stækkun bandalagsins.
Lesa meira
Morgunverðarfundur utanríkisráðherra með japönskum þingmönnum 27. ágúst 2002
Hópur átta japanskra þingmanna úr vináttufélagi Japans og Íslands á japanska þjóðþinginu kom til Íslands í gær í boði utanríkisráðuneytisins ásamt aðstoðarmönnum.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í London.
Lesa meira
Koma bandarískra herskipa til Íslands
Bandarísku tundurspillarnir USS Porter, USS Arleigh Burke og freigátan USS Carr eru væntanlegir til Reykjavíkurhafnar dagana 23. - 26. ágúst n.k.
Lesa meira
Rússnesk herskip í opinberri heimsókn
Rússneskur tundurspillir og birgðaskip eru væntanleg í flotaheimsókn til Íslands 10.-14. ágúst n.k. í boði utanríkisráðuneytisins.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í Helsinki og Tókýó.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra með Ralston yfirhershöfðingja
Á fundi utanríkisráðherra með Ralston yfirhershöfðingja var rætt um væntanlegar breytingar á stöðu Íslands í herstjórnarskipulagi Bandaríkjanna
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra með viðskiptaráðherra Möltu
Í dag átti Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, fund með Josef Bonnici, viðskiptaráðherra Möltu.
Lesa meira
Stefán Haukur Jóhannesson formaður kærunefndar WTO vegna tolla á innflutt stál
Stefán Haukur Jóhannesson tilnefndur formaður kærunefndar til að úrskurða í deilu aðildarríkja WTO vegna ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að leggja verndartolla á innflutt stál.
Lesa meira
Ráðning Berglindar Ásgeirsdóttur í stöðu eins fjögurra aðstoðarforstjóra OECD.
Stjórn OECD, Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar í París, ákvað á fundi sínum 25. júlí sl. að ráða Berglindi Ásgeirsdóttur
Lesa meira
Utanríkisráðuneytið fordæmir eldflaugaárás Ísraelsmanna á íbúðablokk á Gaza
Utanríkiráðuneytið fordæmir harðlega eldflaugaárás Ísraelsmanna á íbúðablokk á Gaza þar sem á annan tug manna lét lífið, þar á meðal konur og börn, og yfir hundrað manns særðust.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í Strassborg, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Berlín.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Póllandi
Jón Egill Egilsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Póllandi.
Lesa meira
Ræðisskrifstofa opnuð í Nagano
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í borginni Nagano í Japan.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra Íslands
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í Peking, Washington, New York, Ottawa og Moskvu.
Lesa meira
Gildistaka Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Rómarsamþykktin um Alþjóðlega sakamáladómstólinn, sem gerð var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sumarið 1998, öðlast gildi í dag, 1. júlí 2002.
Lesa meira
Ráðherrafundur EFTA á Egilsstöðum
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, stýrði í dag ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, á Egilsstöðum. Eftir fundinn undirrituðu ráðherrarnir samning við Singapúr um fríverslun.
Lesa meira
Norður nágranni 2002
Í tengslum við almannavarnaræfinguna Samvörður 2002 eru komnar hingað til lands þyrlur Bandaríkjahers sem verða nýttar til flutningaverkefna í almannaþágu víða um land. Þessi hluti æfingarinnar sem hlotið hefur nafnið Norður nágranni 2002 hefst í dag og mun standa næstu þrjá daga.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í Brussel og París.
Lesa meira
Ráðherrafundur EFTA á Egilstöðum 26.-27. júní 2002
Dagana 26. og 27. júní n.k. verður haldinn á Egilsstöðum ráðherrafundur EFTA. Á fundinum verður undirritaður fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna við Singapúr, sá fyrsti sinnar tegundar milli Evrópuríkja og Austur-Asíuríkis.
Lesa meira
Kynningarfundur um leiðtogafund S.þ. um sjálfbæra þróun
Kynningarfundur um leiðtogafund S.þ. um sjálfbæra þróun verður haldinn á Grand Hótel, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 14:00.
Lesa meira
Opinber heimsókn Halldórs Ásgrímssonar til Noregs 19. - 20. júní 2002
Utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, er nú í opinberri heimsókn í Noregi.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra Íslands
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands í París og Mapútó og fastafulltrúa Íslands hjá EFTA.
Lesa meira
Túnaðarbréfsafhending í Króatíu
Jón Egill Egilsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Króatíu.
Lesa meira
Almannavarnaæfingin Samvörður 2002
Almannavarnaæfingin Samvörður 2002 verður haldin á Íslandi dagana 24. - 30. júní næstkomandi.
Lesa meira
Viðtalstímar forseta Íslendingadagsins í Kanada
Tim Arnason, forseti Íslendingadagsins í Kanada, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 13. júní n.k. kl. 10 til 12.
Lesa meira
Varnarmálaráðherrafundir
Varnarmálaráðherrafundir Atlantshafsbandalagsins, NATO-Rússlandsráðsins, samvinnuráðs NATO og Úkraínu og Evró-Atlantshafssamstarfsráðsins voru haldnir í Brussel 6. og 7. júní.
Lesa meira
Ferðir til Indlands og Pakistan
Í ljósi viðvarandi spennu á milli Indlands og Pakistan er fólki ráðið frá ferðum þangað.
Lesa meira
Viðtalstímar sendiherra Íslands í London
Sendiherra Íslands í London verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 10. júní n.k. kl. 14 til 16.
Lesa meira
056/02 Íslensk menningarhátíð í Austurríki
Íslensk menningarhátíð er haldin í Salzburg, Austurríki 5.-7. júní 2002.
Lesa meira
Nýr stofnsamningur EFTA öðlast gildi
Nýr stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) öðlaðist gildi 1. júní 2002. Nýi samningurinn var undirritaður á ráðherrafundi EFTA í Vaduz 21. júní 2001 og er ætlað að koma í staðinn fyrir upprunalega samninginn sem er síðan 1960.
Lesa meira
Viðræður utanríkisráðherra við konung Jórdaníu
Utanríkisráðherra og Abdullah II, konungur Jórdaníu, skiptust á skoðunum um stjórnmálaástandið í Mið-Austurlöndum, átök Ísraels og Palestínumanna og friðarferlið.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra með Yasser Arafat í Ramallah
Utanríkisráðherra lýsti áhyggjum sínum af þeim átökum og því ofbeldi sem beitt hefur verið á Vesturbakkanum og Gaza.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Malawi
Björn Dagbjartsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Malawi 29. maí 2002.
Lesa meira
Fundir utanríkisráðherra í Ísrael
Á viðræðufundum í Ísrael í dag var skipst á skoðunum um stöðu mála í Ísrael og á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna.
Lesa meira
Aðalræðismaður Íslands í Winnipeg
Aðalræðismaður Íslands í Winnipeg verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu föstudaginn 31. maí n.k. kl. 10 til 12.
Lesa meira
Heimsókn utanríkisráðherra til Miðausturlanda
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, heldur á morgun í heimsókn til Ísraels, Palestínu og Jórdaníu í boði þarlendra stjórnvalda.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisráðherra El Salvador
Utanríkisráðherra El Salvador María E. Brizuela de Avila kemur í opinbera heimsókn 23.-25. maí 2002.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Slóveníu
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra afhenti 21. maí 2002 Milan Kucan forseta Slóveníu trúnaðarbréf.
Lesa meira
Sjálfstæðisyfirlýsing Austur-Tímor 19. maí 2002
Á miðnætti þann 19. maí verður Austur-Tímor lýst sjálfstætt ríki. Ríkisstjórn Íslands hefur sent nýkjörnum forseta, hr. Xanana Gusmao, árnaðaróskir í tilefni af sjálfstæði landsins.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending hjá Páfagarði
Hörður H. Bjarnason sendiherra afhenti 17. maí 2002 Jóhannesi Páli II páfa trúnaðarbréf.
Lesa meira
Frammistöðumat Eftirlitsstofnunar EFTA
Helstu niðurstöður frammistöðumats Eftirlitsstofnunar EFTA um innleiðingu tilskipana ESB.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra Íslands og Kanada
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, á í dag fund með utanríkisráðherra Kanada, Bill Graham.
Lesa meira
Skýrsla nefndar um hnattvæðingu
Í tilefni af nýrri skýrslu nefndar um áhrif hnattvæðingar hér á landi boðar utanríkisráðuneytið til blaðamannafundar í utanríkisráðuneytinu kl. 14.00, mánudaginn 6. maí, 2002.
Lesa meira
Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu 2002-2004
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra flytur erindi um formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu 2002 - 2004, í Háskólanum á Akureyri, 7. maí nk. kl. 12:15.
Lesa meira
Ráðherrafundur Evrópuráðsins í Vilníus
Fjallað um afnám dauðarefsinga og alþjóðleg hryðjuverk á ráðherrafundi Evrópuráðsins sem haldinn var í Vilníus í Litháen í dag.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending á Barbadoseyjum
Þorsteinn Ingólfsson sendiherra afhenti landsstjóra Barbados trúnaðarbréf sitt hinn 30. apríl 2002.
Lesa meira
Ræðisskrifstofa opnuð á Jamaíka
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í Kingston, Jamaíka, en þar hefur ekki verið íslenskur ræðismaður áður.
Lesa meira
Þing Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðannna
Fimmtugasta og áttunda þingi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lauk í Genf í dag.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra með utanríkisráðherra Danmerkur
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með utanríkisráðherra Dana, Per Stig Møller.
Lesa meira
Opnun menningarhátíðar í Berlín í tilefni af aldarafmæli Halldórs Laxness
Forsætisráðherra Íslands, Davíð Oddsson, og kanslari Þýskalands, Gerhard Schröder, opna menningarhátíðina "Island Hoch" í Berlín í dag.
Lesa meira
Opinber heimsókn forseta Íslands til Rússlands
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, áttu í dag fundi með Vladimir Putin, forseta Rússlands og Mikhail Kasyanov, forsætisráðherra Rússlands.
Lesa meira
Menningardagskrá í Vínarborg
Ríkisútvarpið í Austurríki (ORF), í samstarfi við sendiráð Íslands í Vínarborg, stendur fyrir sérstakri menningardagskrá í Vínarborg í dag, 18. apríl, í tilefni af aldarafmæli Halldórs Kiljan Laxness, þann 23. apríl n.k.
Lesa meira
Blaðamannafundur utanríkisráðherra 15. apríl nk. vegna NATO-funda í Reykjavík
Vorfundir utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess verða haldnir í Reykjavík 14. og 15. maí næstkomandi.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisráðherra Slóvakíu
Eduard Kukan, utanríkisráðherra Slóvakíu, kemur í opinbera heimsókn til Íslands 14. - 16. apríl næstkomandi í boði Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra.
Lesa meira
Orðsending send til stjórnvalda í Ísrael
Í harðorðaðri orðsendingu til stjórnvalda í Ísrael leggja íslensk stjórnvöld áherslu á að lausn átakanna geti aldrei falist í hernaðaraðgerðum.
Lesa meira
Fólki ráðið frá ferðum til heimastjórnarsvæða Palestínumanna
Vegna ótryggs ástands er fólki ráðið frá ferðum til heimastjórnarsvæða Palestínumanna.
Lesa meira
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 25. maí 2002
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 25. maí nk. fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg og hefst þriðjudaginn 2. apríl 2002.
Lesa meira
Aðstoð við Afganistan - II.
Í janúar sl. ákvað ríkisstjórnin að veita aðstoð við Afganistan. Flugfélagið Atlanta sá um flutninga frá Evrópu á tækjum, varningi og lyfjum til hjálparstarfs þar.
Lesa meira
Viðtalstími Þórðar Ægis Óskarssonar sendiherra í Vínarborg
Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra Íslands í Vínarborg verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 27. mars n.k. kl. 10 til 12.
Lesa meira
Fundir utanríkisráðherra í Þýskalandi
Fundir utanríkisráðherra í opinberri heimsókn til Þýskalands.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisráðherra til Þýskalands
Opinber heimsókn utanríkisráðherra til Þýskalands, dagana 12. til 14. mars.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Ungverjalandi
Þórður Ægir Óskarsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Ungverjalandi.
Lesa meira
Fundur ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat í dag fund ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins sem formaður EES/EFTA-ríkjanna.
Lesa meira
Laxnesshátíðir á átta stöðum í Svíþjóð í ár
Þann 21. mars næstkomandi hefst Laxnesshátíð í Stokkhólmi. Þar verður sérstök sýning með tilvitnunum í verk skáldsins, en þessi sýning er á sænsku og hefur Kaupþing í Stokkhólmi kostað sýninguna.
Lesa meira
Per-Erik Risberg skipaður ræðismaður Íslands í Umeå
Ný ræðisskrifstofa Íslands stofnuð í Umeå, Svíþjóð.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins í Kaliningrad
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sat í dag utanríkisráðherrafund Eystrasaltsráðsins í Svetlogorsk í Kaliningrad í Rússlandi, en Rússar gegna nú formennsku í Eystrasaltsráðinu. Á fundinum var þess minnst að tíu ár eru liðin frá stofnun Eystrasaltsráðsins.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Armeníu
Benedikt Jónsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Armeníu.
Lesa meira
Ráðstefna um markaðsaðgang að EES-svæðinu og reglur um CE-merkingu vöru
Samtök iðnaðarins og Staðlaráð Íslands efna til ráðstefnu föstudaginn 1. mars nk. um markaðsaðgang að EES-svæðinu og reglur um CE-merkingu vöru.
Lesa meira
Svavar Gestsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Búlgaríu
Svavar Gestsson sendiherra afhendir Georgi Parvanov, forseta Búlgaríu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Búlgaríu, með aðsetur í Stokkhólmi.
Lesa meira
Undirbúningsnámskeið Íslensku friðargæslunnar
Fyrsta undirbúningsnámskeið Íslensku friðargæslunnar verður haldið dagana 23. og 24. febrúar nk. Þátttakendur eru þeir rúmlega 100 einstaklingar sem valdir hafa verið af utanríkisráðuneytinu til að vera á viðbragðslista.
Lesa meira
Svavar Gestsson sendiherra afhenti forseta Sambandslýðveldisins Júgóslavíu trúnaðarbréf
Svavar Gestsson sendiherra afhenti 21. febrúar 2002, hr. Vojislav Kostunica, forseta Sambandslýðveldisins Júgóslavíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands, með aðsetur í Stokkhólmi.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Georgíu
Benedikt Jónsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Georgíu.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra Norðurlanda í Osló
Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda sem fram fór í Osló í dag var meðal annars fjallað um baráttuna gegn hryðjuverkum og ástandið í Afganistan og á Balkanskaga.
Lesa meira
Trúnaðarbréfsafhending í Bosníu-Hersegóvínu
Þórður Ægir Óskarsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bosníu-Hersegóvínu.
Lesa meira
Ráðstefna utanríkisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga 8. febrúar 2002
Utanríkisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til ráðstefnu föstudaginn 8. febrúar n.k. um áhrif EES-samningsins á íslensk sveitarfélög.
Lesa meira
Opinber heimsókn utanríkisviðskipta- og efnahagsmálaráðherra Kína 2.-5. febrúar 2002
Shi Guangsheng, utanríkisviðskipta- og efnahagsmálaráðherra Kína verður í opinberri heimsókn hér á landi dagana 2.-5. febrúar n.k. Í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra mun ráðherrann eiga fund með Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Lesa meira
Stofnað til stjórnmálasambands við Katar
Undirritað samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Katar.
Lesa meira
Aðstoð við Afganistan
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita aðstoð við Afganistan í því formi að Flugfélagið Atlanta mun á næstunni sjá um flutninga á tækjum, varningi og lyfjum sem fara eiga til hjálparstarfs þar.
Lesa meira
Fundur utanríkisráðherra Íslands og Spánar
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með utanríkisráðherra Spánar, Josep Piqué.
Lesa meira
Fundur viðskiptanefnda Íslands og Kína
Viðskiptanefndir Íslands og Kína héldu árlegan fund sinn í Peking í gær.
Lesa meira

