Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur einnig ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis.
Að jafnaði hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla 8 vikum fyrir kosningar og auglýsir utanríkisráðuneytið hvar og hvenær atkvæðagreiðsla hefst hverju sinni.
Sjá nánar XII. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, VIII. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998og lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945.
Símanúmer og heimilisföng sendiskrifstofa má nálgast hér
Uppfletting í kjörskrá
Til þess að vita hvar þú ert á kjörskrá, smelltu þá hér til þess að fara yfir á kosning.is
Utankjörfundarkosning í útlöndum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010
Hægt er að kjósa utan kjörfundar í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Shanghai, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum frá og með 28.janúar 2010. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis.
Kjósendum skal bent á:
- að hafa samband við Þjóðskrá ef þá vantar upplýsingar úr kjörskrá s.s. um kjörgengi og kjördæmi.
- að kjósa tímanlega og kynna sér póstþjónustu í landinu þar sem þeir dveljast svo að tryggt sé að atkvæðin berist í rétt kjördæmi á Íslandi fyrir kjördag 6. mars 2010. Athugið að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
- að setja sig tímanlega í samband við ræðismann til að kanna hvenær hægt er að kjósa á viðkomandi ræðisskrifstofu, sjá lista yfir íslenskar sendiskrifstofur.
- að taka með gild persónuskilríki á kjörstað.
Á kjörstað
- Kjósandi þarf að gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Kennivottorð er persónuskilríki með mynd, svo sem vegabréf, ökuskírteini, bankakort eða greiðslukort.
- Að þessu loknu fær kjósandi afhent kjörgögn.
- Skal kjósandi svo aðstoðarlaust og án þess að nokkur annar sjái rita atkvæði sitt á kjörseðilinn og setja atkvæðið í kjörseðilsumslagið. Kjósandinn merkir við á kjörseðli hvort hann samþykki að lög nr. 1/2010 haldi gildi sínu eða að þau eigi að falla úr gildi. Ef kjörseðill ónýtist hjá kjósanda má hann fá annan í stað hins.
- Þá áritar og undirritar kjósandi fylgibréfið í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna.
- Að lokum skal kjörseðilsumslagið ásamt fylgibréfinu lagt í sendiumslagið og því lokað vandlega. Umslagið skal síðan áritað til hreppstjórans, sýslumannsins eða kjörstjórnarinnar í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig standa á kjörskrá. Á sendiumslagið skal rita nafn kjósanda, kennitölu og lögheimili.
- Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar oftar en einu sinni og skal þá aðeins hið síðastgreidda atkvæði tekið til greina. Utankjörfundaratkvæði telst greitt þann dag sem fylgibréfið er dagsett.
Frekari upplýsingar er að finna á vef dómsmála og mannréttindaráðuneytisins www.kosning.is
Hægt er að beina spurningum og athugasemdum vegna framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu erlendis á netfangið kosningar(hjá)mfa.is.

